Skrípaleikur.

Það er ótrúlegt að fylgjast með talsmönnum valdstjórnarinnar í sambandi við þessi réttarhöld.   Upptökur úr eftirlitsmyndavélum eru glataðar, nema þær sem eru handvaldar af alþingi.  Engin af ákærendum man lengur hvort að ofbeldi var beitt við að fjarlægja níumenningana úr þinghúsinu, jafnvel þó marg endursýndar fréttamyndir RUV bendi til harklegrar meðferðar.

 

Í gær fór forsætisráðherra bananlýðveldisins á kostum á facebook og segir „Mikið finnst mér dapurlegt að einu réttarhöldin í tengslum við hrunið sem eitthvað kveður að enn um sinn, séu vegna 9 menninganna svo nefndu."  Eins og þar sé um máttvana áhorfenda að ræða.

 

Það þarf engum að koma á óvart að þetta fólk verði fyrsta og eina fólkið sem verður dæmt vegna hrunsins.  Dómstólar á Íslandi hafa sýnt það í gengislánadómunum að þeir dæma eftir pöntun.  Kerfið hefur ekki ennþá pantað sýknu yfir níumenningunum þó svo Jóhönnu þyki þetta leitt á facebook. 


mbl.is Skýrslutökum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband