Enn klýfur hún þjóðina.

Hvaða þjóð er sú gamla að tala um? kannski þessi 36% sem kusu? 
mbl.is Kemur ekki til greina að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Hún vil frekar gefa meirihluta þjóðarinnar langt nef með því að halda stjórnlagaþing.

Hreinn Sigurðsson, 25.1.2011 kl. 18:25

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hún er ekki alveg að fatta hvernig landið liggur.

Magnús Sigurðsson, 25.1.2011 kl. 18:53

3 identicon

Það hlýtur að hafa verið svindlað einhvers staðar, annars væri þetta þing gilt. Réttlætisgyðjan er blind, það er glæpur sem hægt að sækja fyrir alþjóðadómstólum að samþykkja ólöglegt þing, og þetta er ólöglegt þing.

Það góða sem stjórnlagaþing hefur lagt til er þrískipting ríkisvald, sem innifelur meðal annars að dómsvaldið sé algjörlega sjálfstætt og það sé með öllu ólöglegt að framkvæmdavaldið ógildi neinar ákvarðanir þess, en í Frakklandi og Bandaríkjunum þar sem alvöru þrískipting gildir, þá hefði verið hægt að fangelsi Jóhönnu og aðra ráðherra út af Lýsingarmálinu, fyrir að framfylgja ekki fyrirskipunum Hæstaréttar og sýna honum óvirðingu... Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir vil ekki sjá slíkt, sem sést á því hversu hún vanvirðir dóma Hæstaréttar í þessu máli. Hún vill halda áfram að geta valtrað yfir þjóðina í trossi við dóma Hæstaréttar. Man einhver eftir Lýsingarmálinu sem hefði getað bjargað ótal heimilum frá gjaldþroti, hefði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir ekki ákveðið að ógilda með öllu dóma Hæstaréttar, eins og ævinlega kom hún þarna auðvaldinu til bjargar í öllum þess stríðum gegn almenningi á vonarvöl.....Þar slær hjarta hennar ríkisstjórnar, fyrir peningalyktina hvar sem hún gýs upp, og af hatri til þjóðarinnar.

Það sem ríkisstjórn Jóhönnu ætlaði að gera var að nota stjórnlagaþing sem fyrirslátt til innlima okkur í Evrópubandalagið, með að reyna að kippa í spotta til að nema burt fullveldisákvæðið, en þá verður enn auðveldara fyrir peningavaldið að kúga almenning, ESB er ekkert alvöru lýðræði, heldur miðstýrt kerfi sem þokast sífellt fjær öllum lýðræðishugsjónum í átt að einhverju sem varla er þorandi að nefna á nafn.....Svo alvarlegt er það mál. Það var meiningin allan tíman að strunta í vilja almennings og hunsa þrískiptingarákvæðið, það hafa gerðir þessarar ríkisstjórnar sýnt, sérstaklega svívirðileg vanvirðing ríkisstjórnarinnar í máli Lýsingar og megi það mál verða henni til ævarandi háðungar. Þetta fólk hefur blóð á höndum sínum. Þau eru ófá sjálfsmorðin sem framin hafa verið í tíð þessarar ríkisstjórnar út af gjaldþrotum og útburðum úr húsum og fleira sem Lýsingarmálið jók til muna eftir að ríkisstjórnin breytti niðurstöðu Hæstarréttar, eins og henni hefði aldrei verið fært í ríki svo sem Frakklandi eða Bandaríkjunum, þar sem er alvöru þrískipting ríkisvalds. Flestir sem hafa tekið eigið líf í kreppunni er ungt fólk sem hafði ekki lengur neina framtíðarvon...þökk sé ríkisstjórninni.

Democracy!!! (IP-tala skráð) 25.1.2011 kl. 21:30

4 identicon

Alveg rétt hjá Democracy... þetta stjórnlagaþing er nauðsynlegt til breyta fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar vegna esb aðlögunar.

Það ætti frekar að tala um stjórnlaganefnd þar sem þetta er aðeins ráðgefandi.

Og mér lýst ekki vel á rafrænar kosningar með þessum vélum:

Hacking Democracy:

http://video.google.com/videoplay?docid=7926958774822130737#

palli (IP-tala skráð) 25.1.2011 kl. 22:12

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Democracy;  flott samnekt þó hún sé sorglega sönn.  Varðandi; "ESB er ekkert alvöru lýðræði"  þá kann þessi að koma orðum að því.

Magnús Sigurðsson, 25.1.2011 kl. 22:35

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

palli;  takk fyrir linkinn, þetta er áhugverð mynd sem ég ætla að skoða við tækifæri.

Magnús Sigurðsson, 25.1.2011 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband