Þjóðaratkvæði takk.

Það hefur verið sagt oft áður á þessu bloggi að að kæmi ekki á óvart að icesave3 renni hljóðlega í gegnum þingið með samþykki fleiri þingmanna sem hafa verið á móti í þessu grundvallarmáli hingað til, um það hvort réttlætanlegt sé að setja skuldir gjaldþrota einkabanka á ábyrgð almennings. 

Það sem kemur á óvart að 1% lægri vextir skulu duga til þess.  Þetta verða að uppistöðu til sömu þingmenn og tóku fullan þátt í því að setja Ísland á hausinn sem eiga eftir að taka þátt í að samþykkja icesave3. 

Þegar kemur í ljós hver þessi reikningur í raun verður, stendur þjóðin frammi fyrir þeim kostum, að taka hyskið af launaskrá, eða lifa sjálf við stórskert lífskjör.  Að samþykkja icesave3 verður dýr lexía.  Því er nauðsynlegt að þjóðin fái að segja sitt álit, þjóðaratkvæði takk.


mbl.is Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Styð heilshugar þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál Magnúr og ég skil þig ágætlega - eftir allt sem runnið er nú til sjávar frá upphafi þessa máls þá hefur þó þetta áunnist - komumst við lengra eða viljum við fara dýpra í "holurnar" ?

hér er allt stopp - ég er til í að leggja þetta undir og vona að hjólin fari svo að snúast okkur í hag þar eftir
áskil mér þó rétt til að skipta um skoðin Magnús en það er réttur sem við höfum öll - þetta er bara mitt mat eins og staðan er í dag

Jón Snæbjörnsson, 2.2.2011 kl. 18:54

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Allir hafa rétt á skoðun og til að skipta.  Ég held að eina leiðin til að fara ekki dýpra í hulurnar sé þjóðaratkvæðagreiðsla.  Mér hugnast ekki að fólk sem situr fyrir og eftir hrun ráði úrslitum í þessu máli.  Ég bæði treysti þjóðinni betur til að velja það sem réttast er og get sætt mig við niðurstöðu hennar hver sem hún verður.

Magnús Sigurðsson, 2.2.2011 kl. 18:59

3 identicon

kanski geta Islendingar laert af folki i Egyptalandi.

http://www.youtube.com/watch?v=w8KQmps-Sog

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 22:19

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Bestu ástæðurnar fyrir því að borga ekki icesave koma oft í athugasemdum.

"Ástæður fyrir því að borga ekki Icesave:

- Aðalástæða fátæktar fátækustu ríkja heimsins er skuldafangelsi sem þessar þjóðir voru settar í , sem hefur komið í veg fyrir alla uppbyggingu, svo sem skólastarf, sjúkrahúsabyggingu og fleira. Ástandið á Haiti var til dæmis nærri jafn slæmt fyrir og eftir hamfarir, afþví að þeir skulda Frökkum svo mikinn pening að það er lítið hægt að gera við afgangspeninga annað en borga skuldir. Sama gildir um mörg Afríkuríki. Við ættum að hafa þetta í huga, þegar við sjáum næst baukinn frá Hjálparstofnun Kirkjunnar með grindhoraða sveltandi barninu á........að með því að borga Icesave er Ísland að leggja blessun sína yfir skuldaánauð þjóða sem concept. Þá munu reiknast á okkur mun hærri skuldir en Bretar og Hollendingar eru færir um að innheimta. Við erum ekki ein í heiminum og það er fylgst með okkur.....

2. Eins og þessi maður nefnir í greininni þá skapar þetta stórhættulegt fordæmi, sem gæti endað í hruni hins Vestræna heims eins og hann leggur sig. Bretar myndu brátt þurfa að súpa af eigin meðali, og með þeim síðan Bandaríkjamenn og fleiri. Efnahagskerfi heimsins gæti hrunið. Það eina sem kæmi í veg fyrir slíkt er vald þessara þjóða......en viljum við láta nýðast á okkur af þeim einum orsökum að við höfum lítið vald? Er það gott fyrir heiminn? Með sömu rökum og verið er að heimta skattfé af Íslendingum hefði verið hægt að gera það af flestum þjóðum.

3. Börnin okkar, barnabarnabörn og svo framvegis. Saklaus börn eiga ekki að gjalda fyrir afglöp 30 íslenskra bankamanna. Erfiðir tímar fara í hönd og við megum ekki við þessum aukabagga ofan á öllu þau stóru vandamál sem tilheyra framtíðinni. Þá einfaldlega munu börnin okkar ekki lifa af. Við getum þá kvatt þessa þjóð bless eftir sirka sjö kynslóðir. Það fara erfiðir tímar í hönd og börnin okkar munu þurfa að vera miklu sterkari, duglegri og betur á varðbergi en við sjálf.

Ástæður fyrir að borga Icesave

1. Blind hlýðni við "hinn sterka". "Stockholms syndrome." Geðveiki. Náði hámælum í tilvitnunum mannvitsbrekknanna sem héldu því fram á alþingi að okkur bæri "siðferðileg skylda" til að borga Icesave hið fyrra.

2. Ný-nazismi Updated Version. Að henga heilli þjóð fyrir mistök örfárra óvinsælla bankamanna. Þannig slær hjarta nazistans og þessar "röksemdafærslur" sendu gyðingana í gasklefana. Það er til geðsjúkdómur sem kallast "Stockholms syndrome". Íslendingar sem trúa því í raun og veru þeim beri að "refsa" fyrir syndir 30 bankamanna, eru líkir sjálfs-hatandi gyðingum af því tagi sem unnu innan veggja fangabúðanna við að urða lík samlanda sinna fyrir örlítið betra fæði og aðbúnað...það er að segja svipað og hinn efri-millistéttar alþingismaður býr við miðað við venjulegan íslenskan almenning. Meiri smámenni og smásálir er ekki hægt að hugsa sér. Við verðum að losna við geðveikt og órökrétt fólk af alþingi.

3. Heimsvaldastefna. Íslendingar hefðu getað hjálpað Afríkuþjóðum með að setja gott fordæmi að losna með tímanum undan sínum skuldaklafa, eins og átakið "Make Poverty History" hefur verið að berjast fyrir. Auðvitað finnst öllum það ekkert gott mál. Sumir aðhyllast enn Heimsvaldastefnu og trúa að best sé að litaði maðurinn sé enn undir hæl gömlu þrælahaldara sinna sem stálu flestum auðæfum hans. Kannski gamli Colonialisminn eigi svo sterka stuðningsmenn á Íslandi þeim finnist þeim bera "siðferðileg skylda" til að fara undir hælinn með Afríku, frekar en skapa mögulega hættu á lagalegu fordæmi, gömlu Heimsveldunum í óhag.

Save Iceland - Kill "Icesave""

Magnús Sigurðsson, 2.2.2011 kl. 23:40

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ekki sé ég fyrir mér Magnús að við ÍSLNENDINGA viðurkennum okkur sem "fátæka" og vera "sett" á garðan - sjáðu þetta ansk stjórnkerfi, sjáðu hvar allur auðurinn er - ekki glæsilegt - er hægt að vorkenna þjóð eins og okkur ?  - hver vill okkur ?

við erum svo "klár" að við teljum okkur ekki þurfa neitt frá öðrum - þolum ekki að viðurkenna opinberlega að "þjóðin" var rænd !

Jón Snæbjörnsson, 3.2.2011 kl. 08:07

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

við byggjum bara HÖRPUR og svipuð fíflaverkefni - hvað er til ráða ekki neitt - við ráðum ekki við okkur sjálf - ég er næstum dottin inn í þetta esb kjaftæði - getur þetta nokkuð versnað - mundi Það ekki bara batna - veit ekki

Jón Snæbjörnsson, 3.2.2011 kl. 08:09

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jón, kunningi minn sagði mér í gær að hann væri komin á þá skoðun að hann teldi það vera einu leiðina til að losna við íslensku elítuna að ganga í ESB.  Ég held að við losnum ekki við hana með því, við sitjum uppi með sömu spilltu stjórnmálamennina, bara meira af þeim því höfuðborgin verður Brussell, en þá skiptir engu máli hverja þeirra við kjósum því ákvarðanirnar eru teknar þar.  Það er ennþá smá von að fram komi stjórnmálamenn sem vinna fyrir þjóðina meðan ákvarðanavaldið er hér, þó hún fari vissulega hratt dvínandi.

Magnús Sigurðsson, 3.2.2011 kl. 09:04

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þá verður að setja á stofn og koma til ráða alveg nýjan stjórnmálaflokk skipuðu heiðarlegu dugmiklu fólki af báðum kynum á öllum aldri úr öllum þjóðfélagsstéttum

Jón Snæbjörnsson, 3.2.2011 kl. 09:17

9 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála þér Jón og það verður hægara sagt en gert.  En byrjunin á breytingum gæti verið að hvert og eitt okkar hætti að sína meðvirkni með því kerfi sem er og hjálpum hvort öðru. 

Þess vegna tala ég oft um að það verðmætasta í dag séu þrjár hænur, kartöflugarður og veiðistöng.  Þetta er skattfrjáls skemmtun sem skaffar mat, það er ekki allt fengið með mikilli vinnu og háum launum eins og skattamann hefur sýnir okkur þessi árin.

Magnús Sigurðsson, 3.2.2011 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband