Samstaðan er undir hverjum og einum komin

Það má segja að yfirvöld sóttvarana hér á landi hafi eignast norskan málsvara, þegar litið er til aðgerða þeirra vegna Wuhan veirunnar. En sóttvarna yfirvöld hafa farið fremur rólega af stað með aðgerðir og hafa hlotið réttmæta gagnrýni fyrir, enda er engu líkara en hver aðgerð til að hefta útbreiðslu veirunnar til þessa, hafi komi aðeins of seint. 

Ørjan Olsvik, pró­fess­or í örveirufræði seg­ir sjálfsagt að fara var­lega og gera ráðstaf­an­ir til að fyr­ir­byggja smit um leið, en „kór­ónu­veir­an er ekki hættu­leg þorra fólks. Þeir sem eru látn­ir voru veik­ir fyr­ir. Kór­ónu­veir­an er venju­leg veira sem er væg­ari en hefðbund­in flensa. Vanda­mál­in byrja þegar yf­ir­völd fá móður­sýkiskast, þá öpum við eft­ir þeim. Lítið höf­um við lært og erum fljót að gleyma því að við höf­um lent í þessu oft áður án þess að stór­hætta sé á ferð.“

Þegar svínaflens­an svo­kallaða gerði strand­högg í Nor­egi árið 2009 lét Olsvik frá sér sams kon­ar gagn­rýni og hafði reynd­ar lög að mæla. Norsk heil­brigðis­yf­ir­völd létu þá í veðri vaka að 1,2 millj­ón­ir Norðmanna gætu tekið sótt­ina og 13.000 lát­ist úr henni. Var þegar haf­ist handa við fjölda­bólu­setn­ing­ar sem kostuðu 550 manns al­var­leg­ar auka­verk­an­ir. Alls lét­ust 30 manns í Nor­egi úr svínaflensu.

„Hvern ein­asta bæj­ar­bruna hefði mátt slökkva með einu vatns­glasi á rétt­um tíma­punkti,“ seg­ir Ørjan Olsvik, pró­fess­or í lækn­is­fræðilegri ör­veru­fræði. Höfuð atriðið sé því að hindra útbreiðslu veirunnar. Íslensk sóttvarna yfirvöld gerðu það í upphafi með því að höfða til samstöðu almennings.  Tilmæli hefðu vissulega mátt vera mun ákveðnari, þó svo almenn væru, s.s. að biðla ákveðið til fólks að bíða með óþarfa utanlandsferðir og skemmtanir á viðsjárverðum tímum. Einmitt vegna þess að kóróna veiran er ekki talin hættuleg þorra fólks.

En þegar upp er staðið þá verður hver og einn að líta í eigin barm.


mbl.is Segir yfirvöld ala á óþarfa ótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband