15.3.2009 | 12:04
Er ný heimskipan framundan?
Þær eru margar og misvísandi fréttirnar sem berast. Það þarf enginn að velkjast í vafa um að heimskreppan er vandlega skipulagt ferli. Því er aldrei mikilvægra en nú að taka öllum fréttum með vara, jafnvel best að loka á fjölmiðla um tíma og upplifa umhverfið án þeirra.
Er þetta það sem við viljum í framhaldi af fjármálaskandalnum? http://www.davidicke.com/index.php/
![]() |
Illa þefjandi stórgróði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.3.2009 | 23:02
Hættum meðvirkni með bankakerfinu.
Það fer ósegjanlega í taugarnar á mörgum þegar fólki er sagt að standa saman og vera gott hvert við annað í kreppunni. Reiðin kraumar sem aldrei fyrr, því svo margir eru komnir fram á ystu nöf með að missa sitt vegna skulda sem þeir áttu ekki þátt í að koma í óviðráðanlegar upphæðir. En það væri barnaskapur láta sér detta í hug að hækkun skulda sé eitthvert slys, en ekki vandlega skipulögð atburðarás. Lausnir á skuldavandanum munu verða boðnar innan skamms, í formi hjálpræðis af sömu stofnunum, sama fólki og ráðlagði lántökurnar á sínum tíma. Þær lausnir munu felast í því að festa lántakendur enn betur á klafann sem skuldaþræla. Þetta á að gera með því að staðfesta hækkun á upphaflegu skuldinni og færa afborganir aftur fyrir. Einhver hluti fólks verður látin sæta upptöku eigna og byrja frá grunni, gjaldþrota í vonlítilli stöðu. Aðrir meiga svo prísa sig sæla fyrir að sleppa við þau afleitu örlög.
Auk þessa munu skattar verða stórhækkaðir í framtíðinni til að gera upp þær skuldir sem ríkið tekur yfir vegna bankahrunsins. Skattarnir renna svo til AGS og skyldra aðila í formi vaxtagreiðslna og vegna ímyndaðra skulda þjóðarinnar sem ætti í raun að vera mál á milli eigenda einkabankanna og þeirra sem lánuðu þeim. Ríkissjóður mun verða verkfærið sem sér um þessa skulda innheimtu, sami ríkissjóður og sagður var vera skuldlaus fyrir hálfu ári síðan.
Það sýnir best að þessi atburðarás er ekki sér íslenskt "slys", er að hún á sér ekki einungis stað hér, heldur um allan heim. Ríkissjóðir eru allstaðar að skuldsetja sig, það er kallað innspýting í bankakerfið sem búið er að tönglast á að eigi að sjá um "súrefnið" fyrir atvinnulífið, einhvertíma hefði þetta verið kallað að snúa staðreyndum á hvolf því sannleikurinn er að verðmætin verða ekki til í bönkum. Samhliða þessu er fólki um heim allan ógnað með atvinumissi. Fjölmiðlar eru óspart notaðir við að magna ótta fólks og auka á ringulreiðina. Með því einu að slökkva á sjóvarpinu má losna við þennan hræðsluáróður, fá mikinn tíma bæði fyrir sjálfstæða hugsun og til að sýna náunganum hluttekningu.
Eftir fall þriðja ríkisins og eftir að hafa lifað við áralangan áróður nasista höfðu margir Þjóðverjar þetta að segja;
Fyrst tóku þeir gyðingana og ég var ekki gyðingur svo ég gerði ekkert.
Svo tóku þeir kommúnistana og ég var ekki kommúnisti svo ég gerði ekkert.
Svo bönnuðu þeir stéttarfélögin og ég var ekki í þeim svo ég gerði ekkert.
Svo komu þeir eftir mér og þá var engin eftir til að tala mínu máli.
Látum þetta ekki verða eftirmæli okkar við fall íslenska bankakerfisins;
Fyrst gengu þeir að þeim sem ekki stóðu í skilum með bílalánin, en þar sem ég var ekki með bílalán varðaði mig ekkert um það.
Svo gengu þeir að þeim sem ekki réðu við húsnæðislánin en þar sem ég réði við mitt snerti það mig ekki.
Svo gengu þeir að þeim sem höfðu misst vinnuna og gátu ekki staðið í skilum með skuldir sínar, en þar sem ég hafði vinnu kom mér það ekki við.
Svo fóru þeir fram á að ég léti svo stóran hluta tekna minna í skatta að ég var verr settur en þrællinn, þá stóð enginn með mér.
Óttumst ekki, sýnum að við stöndum saman því versta martröð peningakerfisins er synjun okkar um greiðslu skatta, synjun okkar á að yfirgefa heimili okkar þó svo bankarnir fari fram á það. Kerfið getur ekki staðist ef þetta er gert af fjöldanum. Flytjum byltinguna að heimilum þeirra sem eru að missa þau, mótmælum þar, ekki með ofbeldi og róstum því það er það sem lögregla hefur verið undirbúin til að fást við, heldur með búsáhaldaslætti, gamansemi og dansi. Gefum útsendurum valdsins blóm það hefur sýnt sig að það gefst betur en grjótkast og eldar. Því að vinarþel slær vopnin úr höndum þeirra enda búa þeir við sama veruleika og við það eina sem aðskilur þá er starfið og búningurinn.
Hættum að vera meðvirk kerfinu, minkum vinnuna, finnum leiðir til að eiga viðskipti okkar á milli án peninga, ræktum okkar eigið grænmeti notum tímann til að fiska í soðið, það er hvort því sem er mun ánægjulegra en langur vinnudagur fyrir skattinn. Með því að vera ekki meðvirk kerfinu losum við okkur undan því að greiða skuldir bankakerfisins í gegnum skatta, við losnum við að láta 12% launa okkar renna til lífeyrissjóða sem er hvort því sem er að stórum hluta glatað fé eins og staðan er í dag auk annarra launatengdra gjalda. Gerum okkur grein fyrir að nú þegar fara 3-4 mánuðir á ári af launum okkar í að greiða vexti til peningakerfisins í gegnum skatta, plús þá vexti sem við þurfum að greiða af eigin skuldbindingum.
Pólarnir eru í raun aðeins tveir ást og ótti. Stöndum því saman verum góð hvort við annað við eru fleiri en þeir sem ráða straumi peninganna, látum þá ekki halda okkur á póli óttans. Það hefur sjaldan opinberast eins vel og síðustu mánuði hversu vanhæfir stjórnmálamenn eru til að vinna fyrir fólkið, þeir sem ráða straumi peninganna eru búnir að ná tökum á þeim sama dag og þeir komast til áhrifa, það kemur ekki til með að breytast við kosningar. Við erum þau sem gerum breytingar með því að breyta okkur sjálfum og vera góð hvort við annað. Byltingunni lauk ekki í janúar og hún heldur ekki áfram einhvertíma eftir kosningar. Byltingin er alltaf núna.
Áhugavert video og pistill þar sem mynd er dregin upp af því sem framundan er í heiminum.
http://www.thecrowhouse.com/ftnwo.html
http://www.davidicke.com/content/view/20744
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
8.3.2009 | 09:57
Papeyjarferð
Í lok maí í fyrra fórum við Matthildur út í Papey ásamt Pólskum starfsmönnum Múrbergs þeim Gregor, Piotr, Jacek og Wadek, einnig var Eiríkur (Dúi) með og á hann heiðurinn af mörgum myndunum sem má sjá í mynda albúminu "Papey 2008" hér á síðunni. Dúi er hæfileikaríkur ljósmyndari og má sjá úrval mynda hans á http://www.flickr.com/photos/duilingur .
Papey er frábær staður að heimsækja þar má kynnast sögu eyjarinnar með leiðsögumanni Papeyjarferða auk þess að skoða hið mikla fuglalíf sem er í björgum eyjarinnar. Á leiðinni á milli lands og eyjar voru selir skoðaðir. Stundum má sjá hvali, þó svo að það hafi ekki verið svo í þessari ferð.
Þetta var sjötta ferðin mín út í Papey. Þær hafa flestar verið í lok maí þegar fuglinn er að hefja varpið. Eins hef ég farið í júlí og ágúst. Fyrir okkur Matthildi var þetta ævintýraferð eins og Papeyjarferðir eru alltaf, hvað þá fyrir Pólverjana og Eirík sem voru að fara í fyrsta sinn. Ekki var verra að hitta Möggu úti í Papey sem býr í húsinu sínu Milljón frá maí - ágúst og fá hjá henni eitt það besta lostæti sem þessi heimur hefur að bjóða, svartfuglsegg.
Nánar um Papeyjarferðir og Papey.
http://www.djupivogur.is/adalvefur/?pageid=174
http://nat.is/travelguide/ahugav_st_papey.htm
Ferðalög | Breytt 4.2.2018 kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 10:45
Nýr vettvangur.
Ég hef verið að hugleiða það í vetur að hverju er best að snúa sér að í framtíðinni. Niðurstaðan var að leggja áherslu á ferðaþjónustu. Nú er ég búin að gera samning við KÍ um leigu á Sekkjartröð á Egilsstöðum sem orlofsíbúð í sumar. Eins erum við félagarnir um Sólhól á Stöðvarfirði, búnir að leigja hann til KÍ líkt og í fyrra sumar.
Auk þess höfum við verið að vinna að því að koma 1000 m2 fiskvinnsluhúsnæði á Stöðvarfirði í notkun. Við höfum leigt það sem geymslu undir húsbíla, hjólhýsi og þess háttar frá september - maí undanfarna tvo vetur. Nú höfum við verið að vinna að hugmyndum um að koma því í notkun frá júní - september.
Þessar hugmyndir ganga út á að hafa opið hús þennan tíma með myndasýningu um fiskvinnslu og veiðar. Auk þessa erum við að reyna að fá video verk Gjörningaklúbbsins ILC Thank You, þar sem þorskur er flakaður aftur á bak og endar sem heill við lagið Ísbjarnarblús, til að sýna á flatskjá eða með myndvarpa í kælinum. Samhliða þessu stendur hluti húsnæðisins handverksfólki á Stöðvarfirði til afnota fyrir framleiðslu sína og fyrir ýmsar uppákomur. Það er semsagt ætlunin að reyna að gæða húsið lífi enda stendur það við aðalgötuna í miðjum bænum og eru allar frekari hugmyndir vel þegnar.
Stöðvarfjörður á margan hátt einstakur, eftir að jarðgöngin komu á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar er hann nánast miðsvæðis á mjög áhugaverðu svæði, álíka langt á Djúpavog og í Egilsstaði. Fjörðurinn snýr þannig að á veturna kemur sólin upp í fjarðar mynninu þar er því sól í skammdeginu. Fjallhringurinn snýr þannig að oftar en ekki er logn í þeim vindáttum sem er blástur í öðrum fjörðum austanlands t.d logn og bjart í norðan áttum vetrarins.
Það fer ekki mikið fyrir Stöðvarfirði sem ferðamannabæ. Þangað koma samt tugþúsundir ferðamanna á hverju sumri, aðallega til að heimsækja hið heimsfræga steinsafn Petru Sveinsdóttir. Þetta eru m.a. það sem gerir það að verkum að ég hef mikinn áhuga á að nýta mér kosti Stöðvarfjarðar í ferðaþjónustu. Sá áhugi byrjaði þegar við gerðum upp gamla húsið Sólhól sem stendur á einstökum stað í bænum sjá http://www.solholl.com/ .
Menning og listir | Breytt 27.2.2010 kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2009 | 11:08
Velmegunin felst í frelsi hugans.
Sá veruleiki sem daglegi er haldið að okkur í fréttum er ekki endilega sá rétti og svo sannarlega ekki sá eini sem er í boði. Ef við komumst ekki framhjá þeim sannleika sem haldið er að okkur í fjölmiðlum þá látum við þá ráðskast með okkur.
Það er svo ótal margt fleira sem gerist í veröldinni en það sem fréttastofur sjóvarpstöðvanna halda að okkur og flest af því bæði jákvæðara og skemmtilegra. Frétta stofurnar færa okkur í megindráttum fréttir sem eiga að skipta okkur máli, fréttir sem eiga að upplýsa okkur í okkar daglega amstri.
Af hverju skildu meginefni fréttatímana vera á neikvæðum nótum, fréttir sem færa okkur stríð, hungur og efnahagshrun heim í stofu. Eru þetta aðstæðurnar í okkar nánast umhverfi? Eru þetta þær aðstæður sem við erum að upplifa á eigin skinni í augnablikinu? Þetta eru ekki fréttir sem hjálpa okkur í hinu daglega lífi. Þessum fréttum er ætlað að halda okkur innan vissra marka. Þær eiga að sýna okkur hvað við höfum það gott, sá ótta í huga okkar ef okkur skildi detta í hug að yfirgefa þann sannleika sem að okkur er haldið. Þeim er ætlað að ráða því sem við hugsum.
Prófum að slökkva á sjónvarpinu, útvarpinu, lesum ekki fréttir og við munum eignast tíma fyrir frjálsa hugsun. Við munum komast að því að lífið bíður þær allsnægtir sem við óskum okkur. Við komumst að því að við tilheyrum hinni stóru heild. Við erum ekki hólfuð niður samkvæmt þeim gildum sem fjölmiðlarnir halda að okkur í ríka, fátæka, valdamikla osfv. við eru ein heild sem tilheyrum þessum heimi.
Samsærið sem haldið er að okkur í gegnum fjölmiðla felst í því að við séum einstaklingar sér á parti og aðstæður annarra séu ekki okkar að við séum heppin og skulum því halda okkur við kassann það verði séð um okkur.
Náum tökum á okkar eigin hugsunum. Þó við getum ekki breytt umhverfinu getum breytt okkur sjálfum, þetta er sannleikur sem vill sjást yfir. Sannleikur sem er í raun jafn einfaldur og spegillinn, þú færð það ti baka sem þú sýnir honum. Ef þú stendur fyrir framan spegilinn og reynir að greiða honum breytist ekki neitt en ef þú greiðr sjálfum þér sýnir spegillinn þér það sem þú vilt sjá.
http://www.youtube.com/watch?v=ITukSyRzVxs&eurl=http://thecrowhouse.com/bigpic.html
Lífstíll | Breytt 27.2.2010 kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 18:18
Er Evrópuþingið við Austurvöll?
Hvað kemur ESB þessu máli við? Eru Alþingismenn orðnir handbendi IMF og ESB? Hvernig væri að snúa sér að því að vinna á forsemdum Íslendinga.
Frelsa hugann, viðurkenna að við þurfum ekki að fylgja fjöldanum, viðurkenna að við höfum rétt til að gera mistök jafnvel hafa á röngu að standa. Gerum okkur grein fyrir því að það er okkar réttur að njóta frelsis okkar eigin frelsis ekki bara þess frelsis sem peningaöfl alþjóðavæðingarinnar halda að okkur heldur eigin frelsis til að hugsa og gera hlutina á okkar forsemdum svo framarlega sem það skaðar ekki aðra. Leifum okkur að vera eins og við erum þó svo að við verðu öðruvísi.
Við getum hugsað sem svo hvernig geta alþjóðastofnanir haft rangt fyrir sér, þær búa yfir bestu hugsanlegu upplýsingum á hverjum tíma. Við þurfum ekki að leita langt það eru ekki margar aldir síðan að yfirvöld Evrópu héldu því fram að jörðin væri flöt og það var hinn almenni sannleikur þess tíma sama hve okkur finnst það fáránlegt í dag.
Við höfum almennan sannleika í dag sem er jafn vitlaus og sá sem var haldið að okkur á fyrri öldum, það er hagkerfi nútímans. Að okkur er haldið allskonar áróðri um ágæti alþjóðavæðingar og stórfyrirtækja stórkostlegrar svikamillu talna sem ætlað er að hneppa okkur og komandi kynslóðir í þrældóm skatta. Á svipaðan hátt og okkur er einnig ætlað að trú að stríð heimsins séu háð í þágu friðar, okkur er ætlað að trúa að það að ráðast með vopnun á aðrar þjóðir sé gert í þágu friðar og frelsis. Semsagt stríð er sama og friður, frelsi er sama og þrældómur og afskiptaleysi af eigin málefnum er skinsemi.
Hvernig væri að Alþingismenn fari að starfa samkvæmt Íslenskum verleika.
Villa getur aldrei orðið að sannleika þó svo að hún sé samþykkt af fjöldanum. Eins getur sannleikurinn ekki orðið villa þó svo að enginn vilji sjá hann. Gandhi
![]() |
Taugaveikluð ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.2.2009 | 00:25
Kreppa hvað? ....hvað annað en dýrmætur tími!
Undanfarna daga hef ég dvalið á sælureitnum mínum við sjóinn. Ég hef tekið sólarupprásina með æðarkollunum og skarfinum sem halda sig við tangann í garðinum þar sem atlantshafið leikur við flúðina. Ég hef farið í göngu ferðir um fjörurnar í nágreninu í frábæru veðri. Staðið út á palli í myrkrinu á kvöldin, reynt að telja stjörnurnar og komist að því að tveir plús tveir eru ekki fjórir frekar en mér sýnist. Ekkert sjónvarp, ekkert útvarp, engin blöð, engin kreppa.
http://www.solholl.com/ kíkið á sælureitinn
Frá því í haust hef ég eins og svo margir fleiri haft kreppuna efst í huga. Í nóvember hurfu verkefnin sem fyrirtæki mitt byggði á og starfsmönnum mínum þá fækkað úr tíu í tvo frá því í sumar. Í desember snerti hún mig með atvinnuleysinu og í janúar þegar verkefni komst á dagskrá kom í ljós að ég átti við líkamstjón að stríða sem ég varð að láta laga með tilheyrandi rólegheitum. Ég fór í aðgerð og var inn á sjúkrahúsi í nokkra daga. Þrátt fyrir fréttir af niðurskurði og þjónustuskerðingu heilbrigðiskerfisins varð ég ekki var við ástandið. Því er sennilega að þakka frábæru starfsfólki heilbrigðisstofnanna og þrátt fyrir kreppu þá held ég að þar verði áfram frábært starfsfólk sem hlífi skjólstæðngum sínum við sífelldum véfréttum. Þessa daga á sjúkrahúsinu lá ég mest allan tímann með mp3 spilarann og hlustaði á Pink Floyd. Það sem ég komst næst kreppunni var þegar ég fór fram á setustofu þar sem sjónavarp var í gangi og stefnuræða ríkisstjórnarinnar var á dagskrá, Jóhanna var með síbyljuna sem staðið hefur frá því 6. okt, hvernig til stæði að lágmarka gjaldrot og upplausn þúsunda heimila í landinu. Ég flýtti mér inn og setti mp3 spilarann í eyrun og hlustaði á Shine on you crazy dimonds.
Í stuttu máli sagt þá þurfti atvinnu- og heilsuleysi til þess að ég tæki fríið sem ég er búin að ætla að taka s.l. þrjú ár. Ég hafði að vísu hugsað mér að taka gott frí í vetur eins og svo oft áður, en styttra frí og við aðrar aðstæður. En ég hef fengið ómældan tíma sem ég get notað eftir eigin höfði og hvað er tími annað en verðmæti. Eða erum við ekki oft að vinna til að eiga góðan tíma seinna fyrir okkur sjálf. Nú kom tíminn til mín óvænt og frítt.
Myndir frá góðum dögum:
kreppan | Breytt 30.1.2011 kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.2.2009 | 22:34
Ísland stórasta land í heimi.
Bankamenn sem ástunda sömu vinnubrögð við innheimtu skulda og tíðkaðist fyrir gjaldþrot bankanna ættu að hugsa sinn gang. Það ættu einnig þeir að gera sem verja verðtrygginguna með kjafti og klóm. Þeir ættu í stað þess að hugleiða það að skuldir íslendinga eru af þeirri stærðargráðu að samningstaðan er skuldarans svo ekki sé minnst á réttlætið.
Það er ekki hægt að leysa vandamál með sömu samvisku og orsakaði þau. Þegar við ákveðum að slíta af okkur fjötrana þá hafa eigendur þeirra ekki lengur stjórn á okkur. Fjötrarnir eru sem spilaborg og falla þegar við yfirgefum stöðu okkar því það erum við sem höldum spilaborginni uppi. Það er ekki svo að þeir sem telja sig eiga fjötrana hafi byggt þessa spilaborg heldur hafa þeir ráðskast með okkur í þeim tilgangi. Um leið og við segjum takk fyrir við höfum fengið nóg og höldum áfram með líf okkar í þá átt sem við sjálf viljum eru völd þeirra yfir okkur að engu orðin.
Enginn mun missa húsið sitt. Hvernig er hægtað missa hús í landi þar sem má finna tvöfalt meira af húsum en fólki? Þeir munu ekki geta selt húsin hvort eð er. Enginn Íslendingur muni verða heimilislaus hér á Íslandi. Hvað ættu þeir eiginlega að gera? Skilja þúsundir húsa eftir mannlaus? Það er enginn að fara bera fólk út. Ég skal segja ykkur af hverju. Enginn annar er til að flytja inn í þessi hús..." Dorrit Moussiaeff
Þetta er kjarni málsins. Máls sem er af þeirri stærðagráðu að það verður engin möguleiki fyrir gjaldþrota banka að endurrísa nema með fullu samþykki skuldaranna. Bankarnir eiga engar eignir aðrar en útistandandi skuldir. Vegna brottflutnings verða fleiri þúsundir tómar íbúðir í landinu innan árs. Það gæti farið svo að næsta vetur mættu bankar og sjóðir þakka fyrir að einhver vilji forða þeim fá skemmdum með því að vera í þeim og kinda þær. Þannig staða hefur oft komið upp áður, hér og þar um landið. En nú vill svo til að staðan er svona um allt land og af þeirri stærðargráðu að lándrottnar munu ekki hafa efni á öðru en færa niður skuldirnar.
Þangað til skulum við íhuga þetta: Dagurinn í dag er morgunndagurinn sem þú hafðir áhyggjur af í gær. Var það þess virði? Gandhi
![]() |
Reynslulausir réðu í bönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.2.2009 | 16:21
Lögbundinn þjófnaður.
Lífeyrissjóðakerfið hefur því miður sannað sig hvað eftir annað sem lögbundinn þjófnaður og þá er ég ekki að tala um viðbótarlífeyrissparnað. Öllum er gert með lögum að greiða 12% launa sinna til lífeyrissjóða.
Á minni 48 ára æfi hafa þeir lífeyrissjóður sem ég hef greitt í nú í annað sinn rýrnað á ævintýralegan hátt. Lífeyrissjóður Austurlands hvarf að mestu leiti þegar útrásarvíkingar keyptu Stoke fótboltaliðið og er hann reyndar ekki lengur til frekar en eignarhluturinn í Stoke.
Að fenginni reynslu varð næst fyrir valinu Íslenski Lífernissjóðurinn í vörslu Landsbankans, sá lífeyrissjóður sem ég lét þessa blóðpeninga renna til, valdi Líf IV örugga leið þar sem ávöxtun var lítil og áhætta engin. Af undarlegum völdum tókst Landsbankanum að tapa mestu á þessum vörslusjóði sínum og í bréfi stjórnaformanns og framkvæmdastjóra sjóðsins kom fram að neyðarlöginn 6. október hefðu haft þessa undarlegu verkun, en ekki eigin fjárfestingastefna sem var að kaupa skuldabréf Landsbankans.
Báðir þessir menn sitja enn sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri ÍL. Þeir fara nú um landið og kynna pottþétta fjárfestingaáætlun fyrir árið 2009. Nei það þarf ekki að koma á óvart að forsvarsmenn lífeyrissjóða vari við að launþegar komist í peningana sína, því það yrði kannski minna eftir upp í ofurlaunin þeirra.
![]() |
Vara við útgreiðslu viðbótarsparnaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 1.3.2009 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.2.2009 | 21:38
Fokk off Davíð.
Innan skamms verði Núllið sennilega eini staðurinn í opinberri eigu við Arnarhhól sem Davíð hefur aðgang að þó honum verði tæplega falið að fara þar með lyklavöldin. Svo má spyrja hvort Jóhanna og Steingrímur eigi ekki einnig eftir að missa lyklavöldin og daga uppi sem steinrunnin nátttröll liðins tíma. Nýir vendir sópa best, eða þannig.
![]() |
Davíð segir ekki af sér |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)