26.11.2008 | 23:21
Gáfnaljós í lögfræði.
Blessuð gáfnaljósin eru væntanlega búin að komast að því að mótmælendur verða líka að hafa lögfræðina á hreinu. Það er sennilega bara pólitískir lögfræðingar á þingi og lögfræðiviðundur fjármálakerfisins sem fá að vera á gráu svæði án þess að gáfnaljósin opni síðu með áskorunum á facebook.
![]() |
Óánægð með ræðu á heimasíðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2008 | 10:56
Ætlar IMF að gera þjóðina eignalausa?
Í þessu efnahagslega veðravíti telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Íslenskum efnahag best borgið með svimandi háum stýrivöxtum. Eigna- og atvinnulaus almenningur ásamt gjaldþrota fyrirtækum eiga að koma okkur út úr kreppunni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn virðist ætla að greiða erlendum lánadrottnum upp í topp á kostnað þjóðarinnar, í samvinnu við ríkisstjórnina.
![]() |
Hið fullkomna fárviðri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)