4.5.2009 | 08:59
Kambanes.
Eitt af fallegri annesjum Austfjarða er Kambanes sem gengur í sjó fram úr skriðunum á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar. Skriðurnar eru kallaðar Kambaskriður, nesið er um 1,5 km langt og 1 km breitt.
Tveir bæir hafa verið á nesinu, Kambar sem fóru í eiði 1944 og Heyklif þar sem enn er búið. Á Heyklifi er veðurathugunarstöðin og vitinn á Kambanesi. Á Kömbum stendur steinsteypt neðrihæðin af íbúðarhúsinu nú ein uppi.
Áhugi minn fyrir Kambanesi vaknaði þegar við félagi minn keyptum húsið Sólhól á Stöðvarfirði. Fljótlega eftir að við fórum að gera það upp sumarið 2006, upplýstu Stöðfirðingar um að húsið væri mun eldra en kom fram í fasteignamati þ.e. byggingarár 1944. Það hafði verið flutt á bát yfir fjörðinn frá Kambanesi það ár, en hafði áður heitið Kambar á Kambanesi, sennilega byggt upphaflega 1928.
Ég á enn eftir að kynna mér Kambanesið betur með gönguferðum. Þeir sem hafa gengið það allt segja að það sé vel þess virði. Það sem ég hef séð er bæjarstæðið að Kömbum og þar er fjaran og útsýnið magnað. Hver kamburinn við annan í sjó fram og einn með gati í gegn eins og Dyrhólaey. Á Kömbum var stundaður búskapur og sjósókn, sjást þess víða merki, höfnin hefur verið stórbrotin.
Það er vel þess virði að skoða Kambanesið með gönguferð í sumar. Náttúrfegurð bæjarstæðisins á Kömbum og fjaran er gönguferðarinnar ríkulegrar virði.
Hér á síðunni má finna myndaalbúmið Kambanes.
Menning og listir | Breytt 30.8.2016 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)