6.10.2010 | 10:27
Nuaðungaruppboð í boði ríkisins.
Það er ánægjulegt að eitt af stóru stéttarfélögunum skuli vera búið að átta sig á að það þjónar ekki umbjóðendum þess að búa í verðtryggðu víti. Nú er að sjá hvort þessi vitneskja hríslast inn í lífeyrissjóðina.
Ríki og sveitarfélög virðast ennþá vera illa áttuð á stöðu umbjóðenda sinna. Ríki og sveitarfélög eru með helming uppboðsbeiðna mánaðarins. Hér má sjá hvernig skipting tveggja síðustu vikna er. Eftir því sem fram kemur í mbl fréttinni eru 80% af nauðungasölum knúnar fram af ríkissjóði.
Ríkið hefur algörlega misst sjónar á hlutverki sínu gagnvart þegnunum. Það kemur glöggt fram í niðurskurðartillögum fjárlagafrumvarpsins. Á þegnana er fyrst og remst litið á sem tekjustofna til að halda uppi hálaunaðri elítu og svo auðvitað að greiðar skuldir til erlendra lánadrottna samkvæmt forskrift AGS.
![]() |
Verða 73 þúsund heimili eignalaus? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)