24.10.2011 | 19:08
Helferðarhyskið og IMF.
Það sem kerlingar hexið á við þegar hún talar um gríðarmikinn árangur kristallast í hálfri setningu, þegar hún segir; "því miður séu heimili, fyrirtæki og ríkissjóður afar skuldsett,".
Heimili og fyrirtæki voru i þokkalegum málum þegar kom að aðstoð IMF. Að vísu þurfti að vinda ofan af glæpastarfsemi gjaldþrota bankanna varðandi gengistryggingu lána. Ríkissjóður var s.s. skuldlaus 1.október 2008.
Í stuttu máli gríðarlegur árangur varð af handrukkun IMF á Íslandi, með aðstoð Helferðarhyskisin. En eitt megin markmiðið efnahagáætlunarinnar, hinn margrómaði og margfyrirséði hagvöxtur, lætur á sér standa. Enda algjört aukaatriði á meðan hægt er að reita eignirnar af Íslendingum, að öðrum kosti sæti þeir þrældómi í boði hyskisins.
![]() |
Gríðarmikill árangur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)