Hinn ógnvænlegi spákaupmennskuflokkur.

Aumingja Már nú er honum farið að skorta lýsingarorð eftir að "ruslflokkur" breytti engu fyrir hinn almenna íslending, nú heldur hann að hinn ógnvænlegi "spákaupmennskuflokkur" komi til með að fá þjóðina til að segja já við icesave og verja lífkjörins "hyskisins".


mbl.is Raddir um greiðsluþrot þagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugmælavísur.

Ekki hefur Jóhanna kjark til að verja þjóðina fyrir fjárkúgun frekar en að efna skjaldborgina fyrir heimili landsins. 

Eina efnislega breytingin sem var gerð á fyrri icesave samningi sem þjóðin hafnaði og þeim sem nú er í boði er 8. grein fyrri samnings var sleppt í icesave3   Greinin sem sögð er hafa fengið margann neyðarlagaþegann frá því haustið 2008 til að meta málið út frá "ísköldu hagsmunamati". 

Greinin hljóðaði svona; 

8. gr. Endurheimtur á innstæðum.
Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave-reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave-reikningunum voru fluttar. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.
Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess að þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnast hafa vegna Icesave-reikninganna verði látnir bera það tjón.

Þær eru athyglisverðar upplýsingarnar sem eru að koma fram þessa dagana um það hvernig stórleikarar í íslensku viðskipta- og stjórnmálalífi gátu selt hluti sína í Glitni og fleiri gjaldþrota fyrirtækjum rétt fyrir hrun.  Sérstaklega í ljósi þess að eina efnislega breytingin á icesave 2 og 3 er að 8. gr. er sleppt. 

Ískalt hagsmunamat hvaðan halda menn að peningarnir hafi komið sem notaðir voru til að kaupa verðlaus hlutabréf korteri í hrun og hefur ríkisstjórn Jóhönnu haft kjark til að taka á málinu áður en þjóðin kvittar undir reikninginn?


mbl.is Menn verða að hafa kjark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eindæmi?

Verður það sama upp á teningnum með Baldur Guðlaugsson og með Geir Haarde, táknræn sakfelling eins manns sem á að hvítþvo "hyskið?
mbl.is Baldur í 2 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vitum við það.

Margir hafa tekið þá Lee Buchet og Lárus Blöndal sem óræk vitni um hversu góður icesave3 samningurinn er, þar sem þeir hafi nú skipt um skoðun og tali fyrir því að þjóðin samþykki icesave þá hljóti samningurinn að vera eins og best verður á kosið.  Þá vitum við það, 300 milljónir kostaði að fá þá félaga til að gera samning sem er efnislega eins og fyrri samningur en samt það góður að þeim finnst að þjóðin ætti að samþykkja hann.


mbl.is Kostaði yfir 300 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Economic Endgame.


mbl.is Stöðvun vofir yfir bandaríska ríkiskerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannaðar skoðanakannanir.

Stóru fjölmiðlarnir, liðið sem var á fínu kaupi við að setja Ísland á hausinn, afæturnar sem skattagreiðendur losna ekki við af ofur eftirlaunum, hyskið sem ákvað að heimili landsins yrðu rænd í kjölfar hrunsins og glæpamennirnir með icesave aurana , hafa keypt hverja skoðanakönnunina eftir aðra sem hafa sýnt öruggan sigur Áfram icesave.  En núna er að renna upp fyrir þeim ljós, þjóðin hefur aldrei ætlað að taka á sig skuldir glæpamanna.  Það hefur alltaf verið ljóst að sjálfsprottnar kannanir s.s. á facebook hafa sýnt að 70-80% kjósenda mun hafna icesavelögunum.


mbl.is 54,8% ætla að segja nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave já eða nei?

Þegar við þurfum orðið að borga fyrir það með ævi okkar að búa í landinu sem við fæðumst í er kominn tími til að hlusta á eigið hjarta fremur en stjórnmálamenn, hagsmunasamtök og álitsgjafa sem hafa haft hvað mest áhrif á þá stöðu sem upp er komin.

Jafnvel eftir hrun þar sem ríkisvaldið stendur strípað, líkt og keisarinn forðum, er ætlast það til að afrakstur vinnu okkar renni í formi skatta til manna sem brutu öll siðferðisviðmið náungakærleikans, og ekki nóg með það, nú er okkur jafnvel ætlað að greiða skatta til annarra ríkja vegna tjóns sem þessir sömu aðilar urðu valdar af.

Sagt er að grundvallar tilgangur ríkisstjórna nútímans sé að vera verkfæri fjármagnseigenda að vösum almennings. Með samþykkt icesave á að nota skatta Íslendinga til að greiða skuldir sem ríkið tekur á sig til að greiða skuldir glæpamanna sem urðu til þegar þeir þeir tæmdu sparfjár eign í erlendum útibúum innanfrá og með þá syndaaflausn ætla sömu aðilar að koma "hjólum atvinnulífsins" áfram. Er furða að okkur finnist við vera rugluð og áttavillt? Með valdi hefur verið unnið hörðum höndum að því að telja okkur trú um að við höfum ekkert val, við eigum að sýna ábyrgð. En þetta er allt sjónhverfing, ef við aðeins náum að átta okkur á hvað er réttlæti og hvað er ábyrgð munum við aldrei vinna gegn okkur sjálfum með því að segja já við icesave.

Okkur hefur verið margsagt að icesave samningarnir séu flóknir og aðeins á færi sérfræðinga að skilja þá. Stjórnmálamenn sem jafnvel töluðu gegn samningnum eru orðnir skíthræddir við sérfræðingana með exel þekkinguna, sem hafa samt sem áður enga sýn nema aftur fyrir sig og það í gegnum rör sem er hálfstíflað af kúlulánum. Þessir sérfræðingar, afætur og kúlulánþegar, treysta hvorki ímyndunarafli sínu né innsæi, hvað þá tilfinningunni fyrir réttlætinu. Þeir halda að til að vera fullkomlega faglegir þá þurfi að þurrka út allar tilfinningar og vilja að þjóðin taki skellinn því aðeins þannig komist þeir af.

En hvað er rétt að kjósa? Það getur hver manneskja fundið í hjarta sínu, til þess að skíra út icesave þarf ekki sérfræðing eða stjórnmálamann, hvað þá löglærðan frímúrara, ekki einu sinni þó hann sé í flokksbundinn framsóknarmaður. Öll höfum við leiðsögukerfi hjartans sem segir okkur hvað er rétt og hvað er rangt. Ef við efumst er gott að grípa til gullnu reglunnar "Allt sem þú vilt, að aðrir menn geri þér, það skalt þú þeim gera". Því eins og meistarinn sagði á þeirri reglu hvílir lögmálið

Þú varst fæddur frjáls og munt deyja frjáls. En muntu lifa frjáls? Valið er þitt. Þú ert hinn óendanlegi möguleiki.


mbl.is Greinir á um lögmæti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. apríl 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband