9.10.2012 | 20:03
Mér líkar hvernig þú hugsar.
Jói litli er sá klárasti í bekknum, en ekki endilega í að klára prófin og spurningarblöðin. Til að ná til hans í prófinu ákvað kennarinn að spyrja hann aukalega spurningar.
"Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar spurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?"
"Enginn", svarar Jói.
"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?
"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Jói
Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"
Örstuttu seinna réttir Jói litli upp hendi.
"Já Jói"
"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"
"Endilega" segir kennslukonan.
"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Jói
Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða bara eitthvað.."
"Neeiiii" segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar".