Loka landamærunum

Nú er ekki um annað að ræða en loka landinu bláa áður en túrista vaðallinn étur landann út á gaddinn. Þar að auki ætti það opinbera að senda alla þá sem vilja úr landi, líkt og þegar sauðfé er rekið til beitar á afrétt. Svo þeir sem enn nenna að vinna ærlegt handtak við að safna í kornhlöður hafi til þess stundlegan frið.

En nei, litlu lukkudýrunum í allt of litlu bláu jakkafötunum og dúkkulísu drögtunum dettur þá helst í hug að afnema stimpilklukkuna og mætingaskyldu í ráðuneytinu. Tala um nútíma væða stjórnsýsluna með starfstöð án staðsetningar í símanum sínum.

Þetta lið munu ekki fatta hvað vinna er fyrr en stimpilklukkan hefur verið afnumin bæði í eldhúsinu hjá mömmu og hjá þeim sem þrifa eftir það skítinn. En þangað til tælir það til landsins sársvanga flækinga eins og engin sé morgunndagurinn.

Ef einhver er lengur í vafa um það hvar þeir halda sig sem voru skráðir atvinnulausir eða á heimavinnandi hlutabótum í kóvítunu, þá eru þeir í biðröðinni á flugvellinum á leið í fríið með selfí símanum sínum.

Þó svo að túristinn gefi aur í imbakassann þá verður sá verðbólgni vonarpeningur ekki étinn frekar en taðið úr tíndri túnrollu þegar kemur fram á veturinn. Í mesta lagi verður um glópagull auðróna að ræða í Money Haven.

Guð blessi Ísland.


mbl.is Mannekla erlendis hefur áhrif á Icelandair og Play
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband