5.6.2023 | 05:34
Gervigreind - flokkað sorp
Það er búið að að fábjánavæða glóbalinn með trú á ritrýnda tölfræði fengna úr spálíkönum smart dýrkun og að flokka sorp ofan í sömu sömu holu.
Þegar sýndarveruleikinn og gervigreindin bætist svo ofaná allt saman frá þeim sem hæðst gala, -er ekki von á góðu.
Þar sem lífsreynsla skilningur og raunveruleg kunnátta í lífsins gildum eru látin sigla sinn sjó, -nálgumst við veruleika þar sem hver verður sjálfum sér næstur.
Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar fólk kaupir óskapnaðinn með þögninni, -kyngjandi honum með kolefnisjafningi og carbfix, -sættandi sig við snuðið.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)