12.7.2023 | 08:52
Ísland úr NATO og herinn burt !
Hlýtur að teljast til hatursorðræðu eftir að dragdottningin í Davosdúkkulýsu dragtinni smurði kyssitauið í Vilníus til að gleðjast með stríðsglæpamönnum yfir inngöngu Svía í NATO.
Þar var leikarinn ástsæli ennig kjassaður vegna engrar ákvörðunar um framtíð Úkraínu, -annarrar en áframhaldandi stríðsrekstri m.a. í boði íslensku þjóðarinnar.
Fölsku tennurnar eru nú þegar farnar að glamra af spenningi í kaldastríðs kumlinu, eftir að 90% Íslendinga lýstu yfir einlægri ánægju með NATO.
Keflavíkur göngur heyra því sennilegast sögunni til og framvegis verði gleðigangan ein leifð á landinu bláa og hatursorðræðu haldið niðri með klasasprengjum.
![]() |
Framtíð Úkraínu liggur í NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)