Almenn tilkynning frá landvættunum

skjaldarmerkid2

Nú er sú staða komin upp í Íslenska lýðveldinu að ríkistjórnarhræið er risið upp frá dauðum til að setjast við kjötkatlana og nota fjárvana ríkissjóð til að dæla út kosningaloforðum.

Ekki leið nema nóttin eftir andlátið áður en Ölfusárbrúin hafði hækkað um 4 milljarða, -úr 14 í 18, sem þykir hóflegt sé mið tekið af Borgarlínu. Uppvakningurinn hefur verið endurræstur á fríu spili og alþingi leyst frá störfum svo hægt sé að hefja atkvæðasmölun.

Segja má að það hafi verið klókt af forsætu lýðveldisins að fara uppáklædd með dúsin af carbfixuðum kellingum í gamaldags útrás til Köpen, ásamt helstu leikendum arðránsins og snakka þar á ensku á meðan ríkistjórnin tók síðustu dauðakippina.

Reisa síðan hræið við sem starfsstjórn svo koma megi í gegn fjárlögum og helstu áhugamálum auðróna þeim tengdum, -og vonandi gjaldskyldri samgönguáætlun eins og frambjóðandi komst svo smekklega að orði.

-Allt minnir þetta á gömlu góðu gullaldarár náhirðarinnar, -eða þá þið eruð ekki þjóðin, -slagorð sem helferðarhyskið hefur tekið í endurnýjun lífdaga. Þetta ættu allir að hafa í huga sem íhuga nú að kjósa taktískt.


Bloggfærslur 17. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband