30.5.2024 | 20:50
Bessastaða tilberinn
Það dylst varla neinum að nú er verðbólgugróði af okurvöxtum Landsbankans notaður til að kaupa TM af náhirðinni. Gripið var til gamla góða galdursins, að senda tilbera á ríkisjötuna, eftir að viðundrið í Seðlabankanum hefur viðhaldið verðbólgnum vöxtum eins og hverri annarri froðu á hlandforinni við fjóshauginn.
Það má öllum vera ljóst að þjóðin situr áfram uppi með hyskið í sínum húsum eftir að náhirðin hefur fullkomnað TM söluna, þar til sígild forgangsverkefni hafa verið fullkomnuð, -og ungt fólki mun áfram fá að sjá sveita síns andlits gufa upp úr þakinu á okurvöxtum.
Nú þegar náhirðin hefur fullkomnað söluna á TM til Landsbankans í gegnum Kviku fær hún upp í arðgreiðslurnar til að kaupa restina af Íslandsbanka. Síðan verður Landbankanum og Landsvirkjun komið í lukkupottinn, enda hafa Davos dúkkulísur ríkisstjórnarinnar þegar sagt að ekki komi til greina að ríkisbanki reki tryggingafélag.
Það skildi engin velkjast í vafa um að litlu lukkudýrunum við Austurvöll liggur á að tæma verkefnalistann svo komast megi með fenginn frá borði með endanlegu fullveldisframsali til glópalsins. Og þá er rétt betra að hafa stimpilpúðann kláran á Bessastöðum.
![]() |
Landsbankinn búinn að ganga frá kaupum á TM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)