30.1.2025 | 13:56
Kínverska gervigreindin í köldu stríði
Nú skröltir hvert kaldstríðskumlið á fætur öðru eins og beinagrindur á hrekkjavöku, og fasistafraukur eru í sjokki eftir að þær komust á snoður um að ekki var um neitt Grænlandsgrín að ræða hjá Trump, -sem ygglir sig nú út og suður.
Hvert ESB hróið um annað þvert sér sér fært að lýsa yfir samstöðu með Dönum vegna skefjalausra stæla Trumps og það jafnvel þó svo að Kúlulánadrottninga-stjórninni okkar hafi ekki beint verið boðið til stríðsæsings með hinu norræna slektinu.
Einhver hefði haldið að réttast væri að Danir styrktu Grænlendinga til að ráða eign landi og valið væri þeirra. -Slepptu því að hroka sjálfum sér upp á heimsins vígaslóð og kasta þar með stríðsæsingum á báða bóga.
Mogens Glistrup stakk upp á því á síðustu öld að Danir legðu niður herinn og settu þess í stað upp símsvara sem segði "við gefumst upp" á rússnesku. Kannski væri nú rétt af þeim að fá gervigreint Kínverskt spjallmenni sem gæti sagt þetta bæði á rússnesku og ensku.
Ps. Sett var inn hér á síðuna yotube með Richard Wolff í gær, sem er vinstri sinnaður hagfræðingur á eftirlaunum. Hér fer hann yfir stöðu kommúnismans í heiminum studda hagtölum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)