Gullmolar, kojur og kúlulán

Það hlýtur að vera hægt að fækka aðstoðarmönnum ráðherra, með því að notast við hagræðingar tillögur almennings úr samráðsgátt!

-En nei sama dag og valkyrjurnar opnuðu gáttina þá var tilkynnt að ráðherrann, sem engin kaus, en er svo ofboðslega innstur í búri að það þarf að skaffa honum ráðherralaun.

-Já einmitt sá sami og á að hagræða, -fékk aðstoðarmann úr klaninu. Þar var um annan gullmola að ræða sem hefur farið fyrir Já Ísland valdaframsalssamtökunum til ESB.

Það flökrar að manni, að nú eigi að raða á jötuna liðinu sem er svo ofboðslega fært í því að hirða allan mismun og ófært um að framleiða nokkurn skapaðan hlut, en kanna að panta og leggja á í skjóli yfirvalda.

Einhvern tíma hefði það þótt sjálfsögð hagræðing að notast við það sem þegar er til á heimilinu, í stað þess að panta og kaupa nýtt, -nema að það sem fyrir er sé ónothæft á við of litlar kojur og gjaldfallin kúlulán.


mbl.is Sannfærð um að „gullmolar“ leynist í tillögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband