21.3.2025 | 05:27
Íslenskir galdrastafir, -þjóðsögur og ævintýri
Kveisustafur lætur engan háska á sér festa ef á sér er borin. Læknar allskonar kveisu.
Ef vel er tekið eftir má sjá að tunglið líkist mannsandliti með enni, nefi, augum, munni o. s. frv. og sama er að segja um sólina, þó sést það ekki eins glöggt á henni því hún er bæði bjartari og fegri. En það er andlitsmynd Adams sem er á tunglinu, en Evu á sólinni.
Heimildir:
Galdraskræða Skugga
Goðsagnir og Þjóðsögur | Breytt s.d. kl. 05:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)