16.4.2025 | 12:04
Heilagir hundar, perlur og svín
Þeir geta verið margir og misjafnir vinirnir á facebook, kannski sem betur fer, en sumir eiga það til að deila þar hreinum gersemum. Svo er með Seyðfirðinginn og Þórshafnarbúann Jón Gunnþórsson, -frænda minn.
Ég hef þekkt Jón frá því ég man eftir mér, og hitt hann af og til á förnum vegi í gegnum tíðina og ef það hefur verið á hans heimaslóð hefur hann boðið í kaffi og kökur.
Eftir að hafa unnið við drunur stórvirkra vinnuvéla mest allt sitt líf, færir Jón okkur nú hugljúfar gersemar á hverjum disknum af öðrum.
Nú dælir hann út perlum úr harmonikkunni sinni á samfélagsmiðlum, okkur hinum til yndisauka, -hér fyrir neðan er ein við ljóð Guðmundar Böðvarssonar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)