20.6.2025 | 14:25
Sprengjudúkkur í þjóðbúningum
Það vellur vitleysan upp úr ógæfufólkinu á alþing þessa dagana, jafnvel Gnarrinu er farið að blöskra, -talar um fullra kalla röfl.
Nú þegar öngla á saman í sprengur handa umboðslausa leikaranum, sem ver lýðræðið í Evrópu, telur sú sem datt í lukkupottinn það vera best gert með auðlindagjaldi á hitaveitur landsmanna.
Sú sem kennd er við kúlulán taldi fyrr í vikunni það vera stjórnarskrárbundinn rétt að innmúraðir, en óæskilegir að mati sprengjudúkkanna, séu á fullu kaupi hjá almenningi til æviloka án vinnuframlags.
Þessari skoðun sinni kom kúlulánadrottningin á framfæri þegar færi gafst á milli þess sem bókun 35 var margþvæld úr ræðustól.
Daginn áður hafði drottningin rokkað um Austurvöll í þjóðbúningi með krossinn um hálsinn, ásamt öllum hinum sprengidúkkunum, -flestar í upphlut landsmönnum til yndisauka í tilefni dagsins.
Já maður spyr sig hvort ekki sé rétt að endurnýa þjóðsönginn og taka upp júdóvísjón slagararann; til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.
![]() |
Blautir draumar og galdrafár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)