Falsfrétt á mbl ?

Það að fólk byrji að vinna fyrir laununum sínum þann 27. júní ár hvert, en hafi fram að því verið að vinna fyrir sköttum og lögbundnum þjófnaði, -er í besta falli upplýsingaóreiða.

Hið rétta er að fólk byrjaði í gær að vinna fyrir virðisaukaskattinum og fasteignagjöldum á skuldir. 

Það má í besta falli fyrirgefa fréttamönnunum á mbl fyrir að birta enn eitt endemis ruglið frá Viðskiptaráði, að hafa glapist á að rugla fólki saman við fyrirtæki, sem geta fengið endurgreiddan virðisaukaskatt, og borga ekki sérstakan skatt af skuldum.

Þessa dagsetningu á árinu þarf því að reikna upp á nýtt og ef erfðafjárskatturinn er tekin með í dæmið þá er hún líklegast ekki til í ljósi nýtustu aðgerða fiskistofu varðandi þjófnað við grjótkrabbaveiðar.


mbl.is Fólk byrjar að vinna fyrir launum sínum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband