Kjósum.

Það er hætt við því að stjórnmálamenn hafi ekki gert sitt síðasta til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.  En samstða íslensku þjóðarinnar mun kom í veg fyrir að stjórnmálamönum takist að komaskuldum gjaldþrota einkabanka yfir á almenning.

Eða eins og Tomoko Kotaka, Colorado segjir, "The people of Iceland are an example of courage and solidarity to the rest of the world".

Eins segir Klaas Arjen Wassenaar, France "Let the banks take the responsability of their own dealings. Governements and the people governed, are not responsable for the acts of the banks located in their country. If people would be responsible, they should as well have been involved in decision-making and profitsharing of the banks. And they were defenitely not. So people of Iceland: do not take these debts on your shoulder that you have not created yourself. Goodluck from a dutchman".

Hérna má sjá fleiri ummæli venjulegs fólks í undirdriftasöfnun til stuðnings almenningi á Íslandi.


mbl.is Íslendingar sagðir hafa gengið af fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Kjósa um hvað? Icesave 2? Nú eru í honum mörg atrið sem eru betri en í Icesave 1 sem er í gildi. Og hvað skeður ef að við fellu Icesave 2? Bendi þér að stuðningur erlendis við okkar málstað þarf að vera mældur í milljónum í Bretlandi og Hollandi ef að hann ætti að virka.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.2.2010 kl. 21:08

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nafni, það er alveg ljóst að lögin frá því 30. des þarf að fella úr gildi.  Ef ríkisstjórnin hefur ekki manndóm í sér til þess er ekki um annað að ræða en að kjósa.  Nýjar þreifingar með lægri vöxtum breyta þar engu um.

Það vita það allir sem setja sig inn í þennan icesave gjörning að að er glórulaust fordæmi að láta almenning axla ábyrgð á gjaldþrota einkabanka. 

Magnús Sigurðsson, 25.2.2010 kl. 21:13

3 identicon

En það er verst að það er búið að sýna þetta glórulausa fordæmi. Veit ekki betur en að við almenningur og skattgreiðendur höfum verið látin axla ábyrgð á a.m.k. 3 gjaldþrota einkabönkum haustið 2008 og það langt umfram það sem lög um innstæðutryggingar gerðu ráð fyrir!!!

Fróðlegt að vita hvað margir græddu á því að farið var fram úr lögboðinni tryggingu?

Manni (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 22:59

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Manni, finnst þér ekki nóg um að axla ábyrgð á klúðrinu innanlands?  Viltu bæta á þig meiru vegna ímyndaðs móralsks ávinnings eða eru það IMF lánin sem heilla? 

Ef svo er láttu þér þá ekki detta í hug að það geri eitthvað fyrir íslenskan almenning.  Lánunum er ætlað að renna til erlendra lánadrottna í formi vaxta og til að halda uppi gjörspilltu stjórnkerfi.  Móralskur ávinningur felst í því að standa á réttlæti.

Magnús Sigurðsson, 25.2.2010 kl. 23:07

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Manni, ég hef grun um að þeir sem græddu mest á því að fara fram úr lögbundinni tryggingu gætu verið þeir sömu og vilja ganga að icesave ánauðinni.  Auk þeirra sem ræddir eru um að missa launin sín nema að ríkinu takist að fjármagna þau með lánsfé.

Magnús Sigurðsson, 25.2.2010 kl. 23:19

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður dagur fyrir lýðræðiðvonandi verður 6 mars það líka.

Sigurður Haraldsson, 25.2.2010 kl. 23:52

7 identicon

Bara æðislegt mál. Þetta þýðir að það verður kosið, það kom að því að þessir nýlendu þjóðir/þjófar fá stopp í sínum yfirgangi, yfir allt og alla, sem þeir hafa gert í margar aldir. Þá er bara að láta þá leita upp skuldarana eða þjófana sem fela sig í þeirra eigin skattaparadísum/kerfi. Annars er  þetta ekki breskur almenningur heldur Gordon & kompani og gróðaklíkan. Breskur almenningur og breskir hagfræðingar verja okkur betur en Hanna, Össi, Steini og aðrir ESB sinnar. Enda verður NEI 80% og hin 20% segja já, enda er bara að senda þeim þessa reikninga ef þeir vilja borga. Það er greinilegt að þeir hafa engin húsnæðislán, bílalán eða annað að borga.

Ingolf (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 00:26

8 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála að dagurinn sem kosið verður um icesave verður góður fyrir almenning og það víðar en á Íslandi.  Þó svo að kosið verði um lögin frá 30. des s.l. þá verður enginn samningur í gildi sem Alþingi hefur samþykkt ef þau verða felld.

Ég vil gera orð Asya Nikolova, í Austurríki að mínum;  "Go Iceland! You are the brave and honourable pioneer in this outrageous precedent and as well hope for other countries which are probably about to face the same situation unless you vote against that barbaric monetary system we are all stuck in today! Save your country by voting "NO" to UNLAWFUL SLAVERY! It's is utterly unlawful to hold accounatble the people of Iceland for a debt, ran up by a private bank. Stop that barbarism! Enough is ENOUGH!"

Magnús Sigurðsson, 26.2.2010 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband