25.3.2011 | 16:45
Púkinn fóðaraður.
Eins og við var að búast verður púkinn áfram fóðraður á fjósbitanum. Eigendur aflandskróna fá að koma með þær heim "til að taka þátt í fjárfestingu í íslensku atvinnulífi." (Kaupa góssið aftur fyrir slikk.) Eins verður passað upp á að jöklabréfaeigendur fari ekki með skertan hlut frá borði "Til að tryggja fjármögnun ríkissjóðs". (Tapið þjóðnýtt).
Landsmenn mega svo búa við gjaldeyrishöftin áfram á meðan jöklabréfa og aflandskrónueigendur blómstra á kostnað skattgreiðenda. Það þarf enginn að efast lengur um hverjir þessir jöklabréfa og aflandskrónu eigendur eru, það er hrunalið Íslands sem hyskið hefur heykst á að draga fyrir dómstóla enda sjálft með vasana troðfulla af kúlulánum.
Höft til 2015 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.