5.4.2011 | 23:10
Save Iceland - Kill "Icesave"
Ástæður fyrir því að segja NEI við Icesave:
- Aðalástæða fátæktar fátækustu ríkja heimsins er skuldafangelsi sem þessar þjóðir voru settar í , sem hefur komið í veg fyrir alla uppbyggingu, svo sem skólastarf, sjúkrahúsabyggingu og fleira. Ástandið á Haiti var til dæmis nærri jafn slæmt fyrir og eftir hamfarir, afþví að þeir skulda Frökkum svo mikinn pening að það er lítið hægt að gera við afgangspeninga annað en borga skuldir. Sama gildir um mörg Afríkuríki. Við ættum að hafa þetta í huga, þegar við sjáum næst baukinn frá Hjálparstofnun Kirkjunnar með grindhoraða sveltandi barninu á........að með því að borga Icesave er Ísland að leggja blessun sína yfir skuldaánauð þjóða sem concept. Þá munu reiknast á okkur mun hærri skuldir en Bretar og Hollendingar eru færir um að innheimta. Við erum ekki ein í heiminum og það er fylgst með okkur.....
2. Þá skapar þetta stórhættulegt fordæmi, sem gæti endað í hruni hins Vestræna heims . Bretar myndu brátt þurfa að súpa af eigin meðali, og með þeim síðan Bandaríkjamenn og fleiri. Efnahagskerfi heimsins gæti hrunið. Það eina sem kæmi í veg fyrir slíkt er vald þessara þjóða......en viljum við láta nýðast á okkur af þeim einum orsökum að við höfum lítið vald? Er það gott fyrir heiminn? Með sömu rökum og verið er að heimta skattfé af Íslendingum hefði verið hægt að gera það af flestum þjóðum.
3. Börnin okkar, barnabarnabörn og svo framvegis. Saklaus börn eiga ekki að gjalda fyrir afglöp 30 íslenskra bankamanna. Erfiðir tímar fara í hönd og við megum ekki við þessum aukabagga ofan á öllu þau stóru vandamál sem tilheyra framtíðinni. Þá einfaldlega munu börnin okkar ekki lifa af. Við getum þá kvatt þessa þjóð bless eftir sirka sjö kynslóðir. Það fara erfiðir tímar í hönd og börnin okkar munu þurfa að vera miklu sterkari, duglegri og betur á varðbergi en við sjálf.
Ástæður fyrir að segja JÁ við Icesave
1. Blind hlýðni við "hinn sterka". "Stockholms syndrome." Geðveiki. Náði hámælum í tilvitnunum mannvitsbrekknanna sem héldu því fram á alþingi að okkur bæri "siðferðileg skylda" til að borga Icesave hið fyrra.
2. Ný-nazismi Updated Version. Að henga heilli þjóð fyrir mistök örfárra óvinsælla bankamanna. Þannig slær hjarta nazistans og þessar "röksemdafærslur" sendu gyðingana í gasklefana. Það er til geðsjúkdómur sem kallast "Stockholms syndrome". Íslendingar sem trúa því í raun og veru þeim beri að "refsa" fyrir syndir 30 bankamanna, eru líkir sjálfs-hatandi gyðingum af því tagi sem unnu innan veggja fangabúðanna við að urða lík samlanda sinna fyrir örlítið betra fæði og aðbúnað...það er að segja svipað og hinn efri-millistéttar alþingismaður býr við miðað við venjulegan íslenskan almenning. Meiri smámenni og smásálir er ekki hægt að hugsa sér. Við verðum að losna við geðveikt og órökrétt fólk af alþingi.
3. Heimsvaldastefna. Íslendingar hefðu getað hjálpað Afríkuþjóðum með að setja gott fordæmi að losna með tímanum undan sínum skuldaklafa, eins og átakið "Make Poverty History" hefur verið að berjast fyrir. Auðvitað finnst öllum það ekkert gott mál. Sumir aðhyllast enn Heimsvaldastefnu og trúa að best sé að litaði maðurinn sé enn undir hæl gömlu þrælahaldara sinna sem stálu flestum auðæfum hans. Kannski gamli Colonialisminn eigi svo sterka stuðningsmenn á Íslandi þeim finnist þeim bera "siðferðileg skylda" til að fara undir hælinn með Afríku, frekar en skapa mögulega hættu á lagalegu fordæmi, gömlu Heimsveldunum í óhag.
Save Iceland - Kill "Icesave"
Margir hafa kosið um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já Magnús hvað skal það vera annað en NEI fyrir framtíðar börn okkar Íslendinga, þetta er gott lag og á svo sannarlega við stöðuna í dag sem er sko ekki auðveld fyrir okkur. En ég er ákveðin í að segja nei og svona þér að segja þá ákvað ég að kíkja í 2 heimsóknir í kvöld og taka um leið púlsin á Icesave og spyrja fólk hvort það væri búið að ákveða sig og af 7 ætla 7 að segja NEI...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 5.4.2011 kl. 23:45
Þetta er "hat trick" ég er ekki alveg svona bjartsýnn að reikna með 100% NEI en allt undir 80% myndi benda til að of stór hluti þjóðarinnar væri vitsmunalega vanþroska.
Magnús Sigurðsson, 6.4.2011 kl. 06:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.