9.5.2011 | 07:36
Kjarni málsins?
Fram hefur komið í fréttum um samninga Íslendinganna í Norrænu að "Shipping.fo hefur sett fram nýjan kjarasamning sem brýtur á réttindum íslenskra starfsmanna samkvæmt íslenskum lögum. Sjómannafélag Íslands hefur samþykkt þennan samning. Kveður hann m.a. á um að við skulum lúta reglugerðum Sjómannafélags Íslands og samningum, borga færeyska skatta en öll önnur mánaðarleg gjöld til Íslands". Það lítur ekki út fyrir annað en það að félagsgjöldin skuli renna til íslensks verkalýðsfélags hafi verið "feiti bitinn" í þessum samning og til þess hafi verið vinnandi íslendingarnir fengju um 30% lægri laun fyrir sömu vinnu.
Formaður Sjómannasambandsins verður að gera betur þegar hann skírir sína afstöðu fyrir þeim sem hann gerði að sínum umbjóðendum, því það er ekki svo að allir þessir starfsmenn hafi séu að vinna í Norrænu í fyrsta sinn, þeir unnu margir áður á sömu kjörum og aðrir starfsmenn um borð áður en þeir voru sérstaklega greindir. "Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag greinir Rúna Vang Poulsen, framkvæmdastjóra Smyril Line, sem rekur Norrænu, og íslensku starfsmennina á um hvort Íslendingunum hafi verið gerð grein fyrir að íslensku samningarnir skyldu gilda áður en þeir hófu störf". Skyldi Jónas Garðarsson hafa greint umbjóðendum sínum frá því um hvað hann samdi, eða var bara spjallað um það yfir kaffibolla á skrifstofunni að ekki veitti af félagsgjöldunum?
Lægri laun fyrir sömu vinnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Saell nafni
Eg kom adeins nalaegt deilu a mill fyrirtaekis og verkalydsfelags vegna erlendra verkamanna fra erlendri starfsmanna leigu og thad eina sem their voru a eftir var ad fa til sin felagsgjoldin og ekkert annad
Magnús Ágústsson, 9.5.2011 kl. 08:55
Þetta datt mér í hug þegar ég las fréttir um þetta. Það er ansi langt seilst að semja kjör niður fyrir fólki um 30% til að ná félagsgjöldunum. Þessir íslensku starfsmenn í Norrænu hefðu verið mun betur settir án samnings, þeir fá engan forgang með þessum samning og varla gilda önnur lögmál hjá Norrænu en hjá öðrum fyrirtækjum, þeir koma til að velja hæfasta starfsfólkið.
Magnús Sigurðsson, 9.5.2011 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.