2.11.2011 | 15:45
Svartastir allra!
Ef það eru einhverjir sem stunda svarta starfsemi þá eru það þeir aðilar sem létu gera athugunina á svartri starfsemi.
SA sem hafði alla þá innan sinna vébanda sem settu Ísland á hausinn, ASÍ sem hefur að geyma þá sem stóðu að því með SA að ræna lífeyrissjóði landsmanna og Ríkisskattstjóri sem innheimtir sem aldrei fyrr skatta sem renna rakleitt úr landi í formi vaxtagreiðlsna.
Þetta er Mafía.
![]() |
12% í svartri atvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ég er sammála, þetta minnir á tilvitnun úr biblíunni þar sem talað er um að sjá flís í auga náunga síns, en sjá ekki bjálkan í eigin auga.
minnnir líka á samviskulausa pískara sem væla um að ná bara 2 lítrum af blóði úr manni sem hefur ekki fengið vott né þurrt í marga daga.
GunniS, 2.11.2011 kl. 16:06
Sæll GunniS, þú ert með þetta að vanda stutt andlegum og veraldlegum rökum.
Magnús Sigurðsson, 2.11.2011 kl. 16:13
Já mikið helvíti þetta er svipuð prósentutala og Páfinn í Róm, Æjatolla Komení og Patrikaninn í Moskvu komust að í rannsókn sinni á vandamálum samkynhneigðar.
Eðlilega á verkalýðshreyfingin tvo af þremur rannsóknarfulltrúum þar sem hún fær 67% á móti 33% hlut ríkisins í skatt af hverjum vinnandi manni.
Kristján Sigurður Kristjánsson, 2.11.2011 kl. 16:32
Það er sorglegt að íslenskur almenningur skuli sitja uppi með þetta hyski ennþá þremur árum eftir að öllu steini léttara var stolið og situr uppi með það að vera þjófkenndur í kjölfarið af hyskinu sjálfu. Réttlæti Hell Angels tekur réttlæti þessarar Mafíu langt fram.
Magnús Sigurðsson, 2.11.2011 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.