10.1.2016 | 09:54
Vetrarframkvæmd
Á Fáskrúðsfirði er verið að byggja 2.400 m2 frystigeymslu sem á að vera tilbúin til notkunar í byrjun mars, en framkvæmdin hófst í nóvember. Húsið er innflutt stálgrindarhús sem byrjað verður að reisa í næstu viku. Þó svo að húsið sé stálgrind fara hátt í 2000 m3 af steypu í sökkla og plötur.
Fyrsta vika ársins 2016 fór að mestu í steypuvinnu, hjá okkur múrurunum. Tveir af fjórum steypudögum vikunnar höfðu verið ráðgerðir á milli hátíða, en þar sem hvert óveðrið rak annað austanlands þá dagana varð ekkert af þeim.
Spáð hefur verið frosti svo langt sem spár ná, því var ekki um annað að ræða en að klára útisteypur. Til þess að það tækist þurfti fjöldi manns að leggja á sig langa daga við járnbendingu og annan undirbúning. Þessar myndir eru frá því á föstudag.
Flokkur: Hús og híbýli | Breytt 3.4.2016 kl. 12:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.