20.3.2016 | 19:22
Er fuglinn eða táknið vandamálið?
Á síðustu öld spann Þýskaland nasismans sinn örlagavef með myrkum öflum, þar sem rúnir komu við sögu. Hinn kynngimagnaði hakakross var merki nasistaflokksins og þriðja ríkis Hitlers. Hakakrossinn er víða til í táknfræði og er þar kenndur við sólarhjólið. Það voru krosslagðar sólrúnir sem mynduðu hinn illræmda hakakross og tvær þeirra hlið við hlið voru notaðar sem tákn stormsveitanna. En sól-rúnin stendur m.a.fyrir þrumufleyg Þórs, sem var eitt ginnhelgasta tákn goðafræðinnar. Gunnfánar, skyldir og jafnvel skriðdrekar nasista voru merktir fornum rúnum. Ástæðan fyrir því að þeir völdu þessi tákn var ekki einvörðungu vegna germansks uppruna, ekki síður vegna þess að hugmyndfræðingar þeirra trúðu á töframátt rúnanna. Sennilega hefur nasismanum tekist að koma meira óorði á rúnir og vísdóm þeirra en galdrabrennum fyrri alda.
Sólarrúnin (sunna eða Sowilo) er rún lífsorku, árangurs, heilbrigðis, bjartsýni, vonar og vaxtar. Þetta er rún sólarinnar sem er frumorka alls lífs, rún bjartsýni, vaxtar og velgengni, þegar markmiðum skal náð. Sunna vísar því til sólarhjólsins sem drífur hringrás orkunnar. Þegar nasistar notuðu sólrúnina í sinni táknfræði komu þeir óorði á notagildi hennar. Tvöföld krosslögð myndaði rúnin hinn illræmda hakakross og hlið við hlið var hún tákn stormsveitanna. Það sem þessi rún varar sterklega við er sýndarmennska, ósanngirni og hégómi. Forðast ber dramb og hroka, gæta þess að láta velgengni ekki blinda sýn því þá mun hún brenna upp á skömmum tíma. Það má því segja að Þýskaland nasismans hafi á endanum uppskorið neikvæðar hliðar sólrúnarinnar.
Hvað á að gera við örninn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fræðandi færsla, takk fyrir það.
Már Elíson, 20.3.2016 kl. 19:46
Þú segir "Tvöföld krosslögð myndaði rúnin hinn illræmda hakakross og hlið við hlið var hún tákn stormsveitanna." Þarna er greinilega verið að vitna til tákns SS-sveitanna en ekki stormsveitanna (SA Sturmabteilung). Það er að vísu mjög algengt að rugla þessu saman. Líklega hefur orðið "stormsveit" þótt svo gott að það hafi verið látið ná yfir SS líka. (https://en.wikipedia.org/wiki/Sturmabteilung og https://en.wikipedia.org/wiki/Schutzstaffel).
Skúli Víkingsson, 20.3.2016 kl. 19:52
Þakka þér fyrir þessar upplýsingar Skúli, þessu ruglaði ég saman.
Magnús Sigurðsson, 20.3.2016 kl. 20:09
Yfirvöld í Uruguay (<- rétt stafsetning) eiga auðvitað að setja styttuna á uppboð og gefa Etchegaray helminginn í staðinn fyrir að láta helvítis Þjóðverjana vaða yfir sig með skítuga skóna.
Aztec, 20.3.2016 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.