Farið hefur fé betra

Nú keppist hver stjórnsýslustofnunin, í klapp við aðra, við að virkja viðbragðsáætlanir sínar með því að senda fólk heim með snjallsímann sinn og vinna þaðan. Enda er vel hægt að tæma gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar með símtali eins og dæmin sanna.

Almannadeild ríkislögreglustjóra mun samt halda áfram að hittast í Skógarhlíðinni innmúruð og afgirt á efsta stigi sóttvarnaráætlunar sinnar. Eins gott að Tetra kerfið hangi inn svo ekki fari eins og í rafmagnsleysinu í desember s.l. og setið var þar í sambandsleysi við landið í tvo sólahringa og trúað að allt væri í gúddí. Það gæti hreinlega þýtt nýja og rándýra innviða yfirlýsingu frá ríkisstjórninni.

Landlæknir kemur svo í dag starfsfólki sínu til varnar fyrir að sinna ekki tilmælum embættisins um að sleppa því að fara erlendis í vetrarfrí úr snjóþyngslunum hér á landi til að renna sér á skíðum í háskalegum Ölpunum, vitandi af sóttkví kynni að bíða í bakaleiðinni. En eins og allir ættu að vera farnir að vita þá er mjög mikilvægt fyrir almenning að fara að fyrirmælum yfirvalda og fylgjast með nýjustu tölum úr Skógarhlíðinni.

Það var reyndar alltaf í ásættanlegt að taka sénsinn í skíðabrekkunum því flissandi fábjánar á þingi voru búnir að gefa út að laun í sóttkví yrði á kostnað skattgreiðenda svo framarlega sem skjólstæðingarnir heyrðu undir það opinbera. Helst má ætla að Panama prinsinn sem heldur um ríkissjóð hafi nú áhyggjur af því að búið sé að loka fyrir flug vestur um haf þegar bestu skíðadagar ársins eru framundan í Aspen.

Í dag eru það, eins og vanalega, helst Jói litli, smáfyrirtækin og starfmenn þess opinbera á plani, sem daglegt líf getur ekki verið án, sem ætlað er að draga björg í bú. Enda betra á viðsjáverðum tímum að þeir haldi sig til hlés og þvælist ekki fyrir vinnandi fólki sem engin augljós þörf er fyrir hvort eð er dags daglega.


mbl.is Viðbragðsáætlun Seðlabankans virkjuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

við þurfum engann innflutnig- getum sparað gldeyri- sölumenn verða bara að fara að selja innlenda vöru-- kex ? baka vöfflur- hrísgrjón- höfum Islenskst bygg.

 eigum egg og kjöt og kál ???

Erla Magna Alexandersdóttir, 12.3.2020 kl. 20:45

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæl Erla Magnea, tek heilshugar undir með þér hvað íslenska framleiðslu varðar.

En mér hefur sýnst að yfirvöld séu ekki allt of upptekin af íslensku kjöti og káli þessi misserin, séu ekki einu sinni með áhyggjur af hrísgrjóna stöðunni í landinu þegar gjaldeyrisforðinn er annars vegar.

Svona í ljósi síðustu ára þá lýst manni ekki á þegar ríkisstjórnin kemur saman að kvöldi eftir að dimma tekur. Það eru ekki nema rétt tæp tólf ár síðan gjaldeyrisforðinn var talin ofan í valda vasa að afloknu stuttu símtali eftir vinnu.

Þegar um hægist eftir Wuhan veiru fárið þarf því ekki að koma á óvart að mun færri hafi farist úr covid-19 en upp var lagt með, en mun fleiri muni finnast þeir hafa verið Shanghai-aðir.

Ekki ólíklegt að við séum að verða vitni af síðustu dögum Seðlabanka Íslands og ferðafrelsi almennings í þeirri mynd sem það hefur verið undanfarna áratugi.

En hvernig sem fer þá munu yfirvöld þakka aðgerðum sínum að ekki fór ver. Við erum farnir að þekkja þessa leikara, þeim er ekki einu sinni skipt út á milli leikrita lengur.

Magnús Sigurðsson, 13.3.2020 kl. 06:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband