11.12.2020 | 16:03
Þar kom að því
Norðmenn ætla sér greinilega ekki að tapa Leifi heppna aftur. En nágranninn í vestri hefur í gegnum tíðina stolið frá þeim öllu steini léttara.
Það er reyndar alltaf jafn hjákátlegt þegar fyrirtæki eigna sér hugverk sem lifað hafa í handverki alþýðufólks á meðal þjóðanna um aldir.
Það verður spennandi að vita hvort það verður norskt eða íslenskt fyrirtæki sem nær að slá lagalegri eign sinni á átta blaða rósina framleidda í þrælakistum Asíu.
Þannig var átta blaða rósinni laumað út úr Noregi
![]() |
Telja íslenska hönnun eftirhermu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Komdu sæll Magnús. Ekki er nú allt sem sýnist, þegar ég var í Noregi í námi lagði ég það á mig að lesa Norska útgáfu af Íslendingasögunum. Meðal annars var Brennu Njálssaga og ýmislegt var þarna fleira. Ég var ekki búinn að lesa lengi þegar ég tók eftir því að hvergi nokkurs staðar var minnst á Ísland eða nokkuð getið um staðhætti eða ferðalög á milli landshluta. Þannig gátu Hlíðarendi og Bergþórshvoll ásamt fleiri bæjum, verið í Trøndelag eða einhvers staðar annars staðar á vesturströnd Noregs. Fyrir nokkrum árum var bæjarstjóri í vestur Noregi í viðtali við Kristján Má Unnarsson á Stöð2, þar sem var verið að reisa styttu af Bjarna Herjólfssyni (hann er talinn hafa fundið Ameríku sennilega eftir að Leifur Heppni "týndi" henni). Kristján Már benti bæjarstjóranum á Bjarni Herjólfsson hefði komið, ÞÁ SAGÐI BÆJARSTJÓRINN AÐ BÆJARBÚR OG NORÐMENN YFIRLEITT VÆRU MJÖG STOLTIR AF ARFLEIFÐ SINNI. DÆMIN ERU FLEIRI OG EF ÉG FÆRI AÐ TELJA MEIRA UPP YRÐI UM ÞVÍLÍKA "LANGLOKU" AÐ RÆÐA.......
Jóhann Elíasson, 12.12.2020 kl. 13:48
Sæll Jóhann, ég held að það geti verið nokkuð til í þessu hjá þér þó svo að ég hafi ekki gert tilraun til að lesa Íslendingasögurnar á norsku.
Norðmenn eru ánægðir með arfleið sína. En ef fólkið sem fór til Íslands hefði ekki fært hana í letur væri það miklu takmarkaðra sem þeir vissu um hana, -þó þeir hafi því sem næst eignað sér Snorra Sturluson.
Arfleiðin verður vafalaust eilífur metingur, en málið er það að hún er alls ekkert frekar bundin við Noreg en Bretlandseyjar og ef menn vilja taka mark á Heimskringlu Snorra þá nær hún suður í Svartahaf.
En það er engin vafi á því að íslendingar eiga stóran þátt í að varðveita þessa arfleið hvað hugverka þættinum líður.
Sjálfur hef ég haft gaman af því að ræða þetta við norðmenn í gegnum tíðina og hef þá stundum klykkt út með það að Noregur sé fallegur en Ísland töff og þangað hafi víkingarnir sem kunnu að skrifa farið.
Til að slá einhvern botn í þetta þá hefst Grænlendingasaga, sem er skrifuð á Íslandi, á þessum orðum:"Herjúlfur var Bárðarson Herjúlfssonar. Hann var frændi Ingólfs landnámamanns. Þeim Herjúlfi gaf Ingólfur land á milli Vogs og Reykjaness. Herjúlfur bjó fyrst á Drepstokki. Þorgerður hét kona hans en Bjarni son þeirra og var hinn efnilegasti maður. Hann fýstist utan þegar á unga aldri. Varð honum gott bæði til fjár og mannvirðingar og var sinn vetur hvort, utan lands eða með föður sínum. Brátt átti Bjarni skip í förum. Og hinn síðasta vetur er hann var í Noregi þá brá Herjúlfur til Grænlandsferðar með Eiríki og brá búi sínu."
Það mun hafa verið þannig sem Bjarni barst að ströndum Ameríku, þó svo að norski bæjarstjórinn á stöð-2 hafi ekki vitað hvernig og hvers vegna hann hann ætti að vera stoltur af arfleið sinni.
Magnús Sigurðsson, 12.12.2020 kl. 14:46
Það er staðreynd, ef ekki væri fyrir Ísland hefðu Norðmenn ekki hugmynd um sína sögu........
Jóhann Elíasson, 12.12.2020 kl. 15:17
Þeir kunnu ekki að skrifa neitt sem bragur var á og tilheyrði þeirra arfleið fyrr en Johan Falkberget skrifaði Bör Börson í upphafi 20. aldar.
Magnús Sigurðsson, 12.12.2020 kl. 15:31
Þegar þú minnist á Bör Börson, þá las ég báðar bækurnar ´sveitinni þegar ég var 10 ára. Síðan hef ég veið að leita að bókunum og viti menn ég fann þær loksins í Kolasportinu árið 2011 og auðvitað var ég fljótur að kaupa þær og þóttist himinn haf höndum tekið og síðan þá er ég búinn að lesa þær þrisvar sinnum....
Jóhann Elíasson, 12.12.2020 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.