31.7.2022 | 06:22
Fjallagrös
Í Landnámu er sagt frá Atla graut Þiðrandasyni sem nam austurströnd Lagarfljóts þ.e. frá Atlavík út undir Vallanes. Viðurnefnið grautur segir þjóðsagan að Atli hafi fengið vegna fjallagrasa sem hann sauð í graut eftir að hann hafði verið dæmdur skógarmaður, þ.e. í 20 ára útlegð frá Íslandi, réttdræpur ella. Atli vildi ekki yfirgefa landnám sitt og leyndist í Hallormstaðaskógi og lifði á grösum og því sem bóndadóttirin á Hallormstað gaukaði að honum. Þjóðsögurnar greina víða frá því að íslenskir útilegumenn hafi lifað á fjallagösum.
Nútímavísindi segja ýmislegt um gagnsemi fjallagrasa t.d. gegn hósta, kvefi, öndunarfærakvillum og magaólgu. Uppistaðan í fjallagrösum - 40-50 % - eru slímkenndar fjölsykrur. Slímið þenst út og verður að hlaupkenndum massa þegar það kemst í snertingu við vatn og sefar þannig og verndar viðkvæmar slímhimnur, sem verða aumar og bólgnar, vegna kvefs, hósta eða þrálátrar barkabólgu. Slímsykrurnar meltast í þörmum og það útskýrir hvers vegna eðlisávísun fólks rak það til þess að leggja sér fjallagrös til munns til að sefa og fylla magann.
Gagnsemi fjallagrasa hefur lengi verið þekkt á Íslandi. Í Ferðabók Olavíusar 1775-1777 um landshagi er oftsinnis komið inn á nytjar fjallagrasa þegar landsins gæðum er lýst. Í ferð hans um Múlasýslur má m.a. þetta finna.
Langanes: Ef ekki væri brimið og þokurnar, sem valda því, að menn verða þar vegna saltleysis að reykja fiskinn í eldhúsi, reyktur fiskur er raunar nógu bragðgóður, og gæta fjárins allan sólarhringinn, mundu bændur á Langanesi vera eins vel efnum búnir og nágrannar þeirra; og mátti raunar sjá þess ljós merki. Að sögn er mikil grasatekja þar hátt til fjalla.
Um Jökuldal: Hofteigssókn er að mestu umkringd af Möðrudalsöræfum, Smjörvatnsheiði og Jökulsá. Á heiðunum er mikil grasatekja. -Vallanessókn: Þarna stunda menn því bæði nautgripa- og sauðfjárrækt, en auk þess afla þeir fjallagrasa af miklum dugnaði.- Valþjófsstaðasókn: Í sjálfum Fljótsdalnum sem héraðið dregur nafn sitt af, nota menn fjallagrös mjög mikið, eins og víðar á þessum slóðum. Er grasatekjan talin meðal bestu landkosta sóknar þessarar.
En hvernig var fjallagrasanna aflað og hvernig voru þau matreidd? Í bók Sigurðar Eiríkssona Af Sjónarhrauni er kafli um Fossárdal í Berufirði og búskap þar fyrr á tímum, en talið er að þar hafi verið búið á 14 bæjum þó svo að það hafi sennilega ekki verið samtímis á öllum (nú er þar tvíbýli, sauðfjárbú og ferðaþjónusta). Í kaflanum er stutt, en athygliverð frásögn af fjallagrösum.
Karólína Auðunsdóttir frá Víðinesi, sem bjó lengi á Djúpavogi, hefur sagt mér ýmislegt frá bernskustöðvum sínum á Fossárdal, sem henni þótti mjög vænt um. Þarna var fátækt, en mikið unnið, því búið var lítið en börnin fimm á heimilinu. Um notkun fjallagrasa til matar hefur hún sagt mér eftirfarandi:
Fjallagrös voru mikið notuð til matar. Það var nóg af góðum fjallagrösum í fjöllunum við Fossárdal einkum í Afréttinni, en hún er í botn dalsins. Á hverju sumri, þegar þau bjuggu í Víðinesi, fór Katínka á grasafjall með tvö eða þrjú börnin með sér. Þau höfðu með sér hestana og sátu börnin á þeim inn eftir. Þau völdu gott veður og voru venjulega í tvo daga í ferðinni. Venjulega fengu þau mikið af grösum, sem þau fluttu á hestunum heim. Þau lágu úti í grænni laut yfir nóttina og breiddu föt sín, teppi og grasapokana ofan á sig. Venjulega voru grasapokarnir ofnir og því talsvert skjól í þeim.
Fjallagrösin voru notuð til matar. Alltaf drukkið grasate á morgnana, og borðuð með því sneið af rauðseyddu pottbrauði með smjöri og mysuosti. Var það mesta hnossgæti. Grösin voru alltaf notuð með grjónum. Einnig voru þau notuð í pottabrauðið. Mjölið var látið út í þétta grasastellu, þegar grösin höfðu legið í bleyti og svo var deigið hnoðað upp á þann hátt.
Nokkru eftir fótaferð var skyrhræringur til morgunverðar. Katínka síaði skyrið svo vel úr ærmjólkinni, að sumrinu, að það súrnaði ekki. Til miðdegisverðar var oftast fiskur. Um miðaftanleytið drakk fullorðna fólkið kaffi en börnin mjólk. Á kvöldin var alltaf skyrhræringur með slátri og brauði. Grösin voru því notuð í flestar máltíðar dagsins, þar sem þau voru bæði í grautum, sem borðaðir voru tvisvar á dag, te að morgninum og í brauði. (Eiríkur Sigurðsson / Af Sjónarhrauni bls 112-1976)
Ég hef stundum sagt frá því hér á síðunni að undanfarin ár höfum við Matthildur mín gefið okkur tíma til að plokka fjallagrös sólbjartan dag upp til heiða, þegar spóinn vellur í kappi við svanasöng, og gæsir gára heiðarvötnin blárri en blá með ungunum sínum.
Þar erum við laus úr erli dagsins, hafgolu og austfjarðaþoku. Hvergi er betra að búa sér ból en í heiðanna ró, meðan blítt blæs gola um kinn, liggja upp í loft á milli þúfna í grasamó og fá sér miðdegislúrinn í fjallasól og mófugla söng, og vita að meira en helmingurinn af hollustunni fæst strax með útiverunni.
Ég fór að rifja það upp fyrir nokkrum árum síðan hvaðan maður hefði vitneskjuna um hollustu fjallgrasa og gat ekki betur munað en hún hefði alltaf verið til staðar. Ég var nefnilega mömmudrengur í bernsku og mamma fór flest sumur þangað sem henni var kærast. Fjölskyldan fór þá eitt sinn á grasafjall í heimahögum hennar sér til yndisauka í sumarfríinu.
Ég ætlaði að sýna Matthildi minni þessar grasa slóðir þegar við vorum þar á ferð fyrir nokkrum árum, en þær eru á heiðinni milli Reykjadals og Laxárdals í S-Þingeyjarsýslu. Við vorum á hraðferð heim frá Akureyri og hugðist ég fara sömu leið og forðum, inn Laxárdalinn og upp á heiðina rétt vestan við Skútustaði í Mývatnsveit. En viti menn leiðin var þá orðin ófær, rétt sást móta fyrir vegslóða í hlíðinni. Þá rann skyndilega upp fyrir mér að það voru meira en 50 ár síðan að mamma kenndi barnahópnum sínum að þekkja og tína fjallagrös.
Við Matthildur mín komumst að sjálfsögðu alla leið heim og erum búin að kenna 4 ára sólargeislanum henni Ævi að þekkja og tína fjallagrös. Það þarf ekki að fara lengra en út á klettana fyrir utan lóð og stundum kemur Ævi inn með fjallagrös í grautinn hans afa.
Athugasemdir
Þar sem ég var í sveit fyrir austan á Gunnlaugsstöðum, en þurfti frá að hverfa vegna heymæði mikillar, voru fjallagrös í háu gengi.
FORNLEIFUR, 31.7.2022 kl. 13:12
Sæll Fornleifur, og takk fyrir athugasemdina. Ef þú hefur verið á þeim Gunnlaugsstöðum sem ég þekki þá get ég gott betur en trúað því.
Það eru sennilega fjallagrös í stóru upplagi um allt land þessi árin, allavega má finna þau hér innanbæjar á Egilsstöðum.
Það eru helst hreindýr sem nýta sér þau nú á dögum, og því kannski ekki skrýtið að hreindýrin hafi verið litin hornauga af landsmönnum eftir að þau voru fyrst flutt til landsins 1771, ef eitthvað er að marka Ferðabók Olavísusar um hversu eftirsóknarverð fjallagrös voru fyrir mannfólkið.
Nú er það aðallega útiveran í íslenskri náttúru sem gera fjallgrös og hreindýr eftirsóknarverð.
Magnús Sigurðsson, 31.7.2022 kl. 14:25
Sæll Magnús.
Er skyldleiki millum Atla þessa og Gunnhildar Algrautsdóttur eða
er ég að grauta hér einhverju saman sem ekkert saman á?
Ekki má gleyma rannsóknum Sigmundar Guðbjarnasonar
á fjallagrösum og hugsanlegri gagnsemi þeirra
við krabbameini.
Húsari. (IP-tala skráð) 31.7.2022 kl. 23:09
Sæll Húsari, þakka þér fyrir að benda á rannsóknir Sigmundar Guðbjarnasonar. Það má segja að það hafi akkúrat verið af svipuðum ástæðum, og hans niðurstöður benda til að fjallagrös séu heilsusamleg, að ég fór út um þúfur. Nema ég geri tilraunirnar alfarið á sjálfum mér og trúi að fjallagrösin gagnist, -af fenginni reynslu.
það er nú einu sinni þannig að ættfærsla landnámsmanna á Austurlandi þykir í meira lagi óskýr. Árni Óla taldi það stafa af gelískum uppruna þeirra í bókinni Landnámið fyrir landnám. Uppruna þeirra væri varla getið en tengsla þeirra og blóðblöndunar við Noreg þeim mun betur.
Í Landnámabók kemur fram að bræðurnir Ketill og Atli, synir Þóris Þiðranda, hafi farið úr Veradal í Noregi til Íslands og numið land í Fljótsdal. "Graut-Atli nam hina eystri strönd Lagarfljóts allt á milli Giljár og Vallaness fyrir vestan Öxnalæk." Í Landnámu eru þeir bræður taldir meðal göfugustu landnámsmanna á Austurlandi.
Um Atla má finna þetta í upphafi Droplaugarsona-sögu: "Ketill hét maður er kallaður var þrymur. Hann bjó í Skriðudal á Húsastöðum. Atli hét maður er var bróðir Ketils. Hann var kallaður Atli grautur. Þeir áttu bú báðir saman og voru fémenn miklir, fóru jafnan til annarra landa með kaupeyri og gerðust stórríkir. Þeir voru Þiðrandasynir."
Í Droplaugarsona-sögu kemur fram að þeir bræður settust að á bökkum Lagarfljóts eftir ferð Ketils þryms, bróður Atla grauts til Jamtalands í Svíþjóð þar sem hann keypti Arnheiði Ásbjörnsdóttir skerjablesa af Véþormi, en bræður Véþorms höfðu hernumið hana á Suðureyjum.
Magnús Sigurðsson, 1.8.2022 kl. 06:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.