Ekki er ein báran stök

Verðbólgan á uppleið og gáfnaljósin farin að heimta evru til að lækka vextina á Svörtuloftum, í stað þess að skjóta á Why Icleland viðundrið niður, sem þar flýgur einn ganginn enn, -yfir þökum unga fólksins. Vanvita verkalýðsleiðtogar stökkva síðan á vagninn enda oft deigt hjarta undir dýrri brynju.

Samskip ákvað að fara í mál við Eimskip vegna þess að Eimskip hafði ekki samráð við Samskip um að viðurkenna markaðsmisnotkun í samkeppni um lægri sekt. Að láta þetta óátalið gæti kostað Samskip á 5. milljarð í sekt á meðan Eimskip þarf ekki að borga nema rétt rúman milljarð, sem er náttúrulega klárt samkeppnisbrot þegar rottur flýja sökkvandi skip.

Og nú boðar litla lukkudýrið í enn einni dúkkulýsudragtinni, sú sem flögraði úr Svörtuloftum um árið, frumvarp um skattasniðgöngu gegn áskrift af fjölmiðlum, svo halda megi lyginni gangandi og tryggja gæði upplýsingaóreiðunnar, lítur þá sérstaklega til RUV sem fyrirmyndar. Fíflinu skal á foraðið etja, -eða þannig.

Ég er svo að segja hættur að nenna að lesa fréttir medíunnar, slökkti á sjónvarpi og útvarpi fyrir ár og síð, hef aldrei talið mig hafa efni á, né heilabú til að fá mér snjallsíma og held því bara að ég endi eins og maðurinn með hattinn sem stóð upp við staur, borgaði ekki skattinn því hann átti ekki aur.


mbl.is Boðar skattaafslátt fyrir áskrifendur að fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hittir alltaf naglann á höfuðið, meistari Magnús, smellhittir.  

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 28.9.2023 kl. 20:59

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mætti bæta við gullkorninu
" verðbólga er ekki vandamálið heldur verðlagshækkanir. "

Eða með öðrum orðum

Yfirborð jarðar er um það bil 70% vatn
Það vatn er án kolsýru og því flatt
Því er jörðin að mestu flöt

Grímur Kjartansson, 28.9.2023 kl. 22:52

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Kann að meta!

Helga Kristjánsdóttir, 29.9.2023 kl. 00:19

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Engvu við þetta að bæta.

Allgjör snilld.

Sigurður Kristján Hjaltested, 29.9.2023 kl. 03:28

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir athugasemdirnar gott fólk.

Mér datt reyndar í hug varðandi verðbólguna og verkalýðsforingjann, -krónuna og evruna, -árinni kennir illur ræðari. En þar sem verkalýðsforingjar hafa róið á fengsæl mið, hvað þá sjálfa varðar, þá fannst mér rétt að höfða til hjartalagsins.

Annað í þessum fréttatíma fjallar um glórulausa illsku og siðblindu á alla kanta gagnvart venjulega fólki þó svo reynt sé að klæða það í siðlegan búning réttlætisins af dúkkulísum og tindátum.

Magnús Sigurðsson, 29.9.2023 kl. 06:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband