Flón

Nú ríkir hamfara blíða á landinu bláa og bjálfarnir láta ljós sín skína í skammdegis myrkrinu. Uppi eru stórhuga áform um að byggja upp bakka við eldgjár og brýr yfir hraunelfur, til viðbótar við allt grjótið sem keyrt eru fjörur til varnar sjávarföllum, og fjöllum sem rutt er til fjalla sem ofanflóðavörnum.

Verklegir vanvitar með sérfræði gráður eigra nú um mela og móa með mælitæki í blíðunni og reka niður hæla svo hefjast megi handa um leið og endanleg staðsetning hefur verið afmörkuð. Á árum áður þurftu þessi flón að gera sig gildandi með því að henda sér fyrir skurðgröfuskóflur svo á þau væri hlustað, -þá oftast við að stöðva framkvæmdir annarra vegna eigin kjarabaráttu.

En nú er öldin önnur þetta eru handhafar sannleikans úr spálíkani, og sem slík skammta þau sér lífsviðurværið sjálf. Það mun gjósa bara spurning hvar og hvenær, þó svo að það verði ekki til annars tjóns en fjárhagslegs þá er aldrei of varlega farið. Það ætti landanum að vera í fersku minni frá því í kóvítinu.

Það sem nú þarf til, umfram allt annað, er að þylja sömu þuluna nógu oft upp úr spálíkaninu í medíuna. Fá flissandi fábjána við Austurvöll til að setja upp áhyggjusvip í beinni, og fara síðan út um þúfur rekandi niður hæla úti á víðavangi sem afmarka innviða skurðgröfunum pláss. Klædd gulum vestum með hvíta plasthjálma á hausnum í guðs grænni náttúrunni.

Þegar þessi flón gera sig gildandi eru hvorki samsæriskenningasmiðir né álhattar á ferð, -þetta eru svokallaðir fræðingar sem byggja allt sitt á vísindum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Vonandi kemur eldgosið fyrir innan 2,3 milljarða kr. varnagarðanna! Annars fara þeir forgörðum! Svo er bjartsýnin svo mikil, að menn halda að gosopið verði í miðjum heita pott Bláa lónsins. En eru menn búnir að tímasetja gosið rétt? Er það 2023? 2024?.....2034?

Birgir Loftsson, 9.11.2023 kl. 20:17

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Blessaður Birgir, -svo er spurningin hvort Bláa lónið á að vera innan varnagarða  og þá landið bláa utan þeirra og þá hvenær og hvaða ár?

Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör, meir að segja í spálíkaninu, en það má samt aldrei láta gott gisk fara forgörðum þegar aurar eru annars vegar.

Og ef allt fer í vaskinn þá byrjar alltaf nýtt stríð einhversstaðar í heiminum einhvern daginn sem sefar gullfiskaminnið.

Magnús Sigurðsson, 9.11.2023 kl. 21:00

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

 Aðal atriðið er að milljarðarnir í loftskattana skili sér í óþekktu vasana erlendis, og að nægir fjármunir séu fyrir hendi til innflutnings óþekktra glæpamanna, og að emætta-innviðirnir fái þó sitt. Eins og "Viðir sagði" "gríoðarlega mikil vinna" fór í hina miklu vinnu.

Guðjón E. Hreinberg, 10.11.2023 kl. 12:55

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Afsakið; gríðarlega. -Það vantar edit hnappinn.

Guðjón E. Hreinberg, 10.11.2023 kl. 12:55

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Guðjón, -þetta er alveg hárrétt hjá Víði hlýði, það getur nefnilega farið gríðarlega mikil vinna í hina miklu vinnu án þess að nein vinna hafi varið í verkið.

Þetta vita flest flón, og ekki minka umsvif þeirra við að flytja inn mállaust fólk á hrakhólum til að framkvæma vinnuna við verkið sem gríðarlega mikil vinna hefur farið í að vinna. 

Svo er bara að leggja loftslagskatta á allt heila dæmið og flytja Hjörleifshöfða úr landi til sementsframleiðslu úti í Evrópu og fá nokkra poka til baka, því Katla er búin að sjá um kolefnissporið.

Við fáum þó allavega steypu.

Magnús Sigurðsson, 10.11.2023 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband