18.6.2024 | 21:56
Fíflagangur
Ég sagði frá því í vetur að það ætti að taka upp á því að taka myndir af fólki á landi ríkisins og rukka. Mér hafði orðið það á að kalla sveitastjórnarfólk mestu fífl sem fyrir fyndust vegna þess að það hvorki æmti né skræmti fyrir sína umbjóðendur, þegar fyrirhugauð var gjaldtaka af hálfu ISAVIA ohf á bílastæðum við þrjá af innanlandsflugvöllum landsins.
Ég benti á að ISAVIA ohf, sem hét áður Flugmálastjórn ríkisins, væri eftir sem áður jafn mikið ríkisins. Sveitastjórnarfólk rumskaði og hafa sum þeirra reyndar þóttust hafa staðið vaktina allan tímann þó þess hafi ekki orðið vart fyrr en búið var að setja upp myndavélabúnaðinn og komið var að gjaldtöku til að bæta upplifun flugfarþega að sögn mannauðs- ,viðmóts- og upplifunarstjóra ISAVIA ohf.
Við sama tækifæri og ISAVIA kynnti þessi bættu upplifunar áform, var bent á að ISAVIA hefði ekki heimild til að taka lán til viðhalds bílastæða, en alveg skautað fram hjá því að ohf með starfsmenn í óunninni yfirvinnu hefur leyfi til að segja upp fólki ef þarf að taka lán fyrir laununum.
Einhverjir tæknilegir örðugleikar höfðu reyndar orðið á því að bætta upplifunin gæti hafist þegar til stóð. Ég giskaði í vetur á að þeim hefði verið rutt úr vegi, sennilega með því að lauma reglugerð í gegnum ráðuneyti sem leifir myndatöku af fólki í landi ríkisins og rukka það.
Nú hefur komið í ljós hver fífl fíflanna eru, -í öllum fíflaganginum. það eru innviða- og fjármálaráðherra samkvæmt RUV.
Farið hefur fé betra.
Athugasemdir
Það er sama hverju Framsóknarþursinn tekur upp á
forheimska hans er með ólíkindum.
Allt frá því að hann stakk Simma í bakið, þá hefur SIngi verið manna duglegastur að stinga ítrekað í bak Framsóknarflokksins og þar með sitt eigið sem formanns.
Á meðan flykkist fylgið að Simma.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 19.6.2024 kl. 23:26
E.t.v. er SIngi heimskasti pól í tík uss uss, sem hin vesæla þjóð hefur átt. Hann er ígildi hins heimskasta sem þrifist gæti, málatuðrublöðru dauðans og djöfulsins. Megi Drottinn gefa þeim líkn og líf! sem elska kærleil Drottins
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.6.2024 kl. 03:13
Við skulum ekki gleyma því Símon Pétur að Singi er guðfaðir þessa ríkistjórnaróskapnaðar sem þenur sig yfir allt rófið frá hægri til vinstri og er að verða búin að hafa af þjóðinni lýðræðið í 7 ár.
Svo koma þau hvert af öðru og viðra vandlætingu sína og samstöðu með fólkinu, -þau Jón flón með innflytjenda málin, Ísaksen með bílastæðamálin og margir í hvalveiðimálinu ofl ofl, -án þess að meina neitt annað með því en lepja upp 15 mínútna frægð.
Magnús Sigurðsson, 20.6.2024 kl. 05:17
Því má svo bæta við að ráðuneytið og ISAVIA ohf fóru í skollaleik gegn almenningi í nýju reglugerðinni sem þau kalla þjónustusamning, og stofnuðu einkahlutafélagið ISAVIA innanlandsflugvellir ehf til að mergsjúga skattgreiðendur með gjöldum.
https://austurfrett.is/frettir/radhherra-buinn-adh-stadhfesta-thjonustusamning-isavia?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR2PMsf_YVYT8iPfnq-z6kjc_9pEvUAwr7xWPC3ak6f9KqebID_Auh5TUiA_aem_ZmFrZWR1bW15MTZieXRlcw
Magnús Sigurðsson, 20.6.2024 kl. 05:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.