Carbfix

Trukkarnir bruna

í gegnum nóttina

um malbikaða

ódáinsakra allsnægtanna

– með björgina í Bónus

- - og sementið í steypuna

 

Við sitjum skaðmenntuð

– og carbfixuð –

í blæðandi vegkantinum

– með hangandi höfuð

– Og hendur í snjallvæddu skauti

 

Teljum kolefnissporin

– og reiknum í bókhaldið

- - - þrjár nætur frá hungursneyð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Flugbeitt ádeila. Takk fyrir.

Arnar Þór Jónsson, 24.7.2024 kl. 19:07

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Svo er mér sagt...
Að ef þú vilt lífsins njóta
Þá mun mengun vera til bóta
eitur í grunnvatni
Til að allt batni

Kolefnistrúarmenn tilkynna mér
að til þess að hitastig veðurs lækki
er nauðsyn að fátækum fækki

Ásgrímur Hartmannsson, 24.7.2024 kl. 19:59

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir góð orð Arnar Þór, -þú ættir að vita það, nýbúinn að fara þjóðveginn og kynnast þjóðarsálinni.

Takk fyrir böguna Ásgrímur, -hún hefur það fram yfir mína að innihalda bæði stuðla og höfuðstafi.

Magnús Sigurðsson, 25.7.2024 kl. 05:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband