Tilkynning frá landvættunum

skjaldarmerkid2

Nú hyllir í það sama hjá Ríkisstjórn Íslands og litlu lukkudýrunum sem fyrst flýja sökkvandi skip og trúa að fúið haldreipið fyrstir fái. 

En sú tíð er liðin. Púkarnir á fjósbitunum hafa þegar selt landið undan þjóðinni ef ekki á carbfixuðu Reykjanesi, þá beint í gegnum Þorlákshöfn og vindrellandi auðrónum til hamafaóræktar víða um land.

Firðirnir, fossarnir og heilu fjallasalirnir hafa verið eyrnamerktir alþjóðlegum auðrónum, sem stundum kalla sig Svarthamar, á glópelskum markaði lífeyrissjóðanna.

Það mun taka mútuþegana u.þ.b. þrjár kynslóðir að tapa öllum ávinningnum. Þá tekur við 7 alda eftirsjá og sjálfstæðisbarátta fíflaðrar þjóðar í rændu landi þ.e.a.s. ef hún lifir af hamfarirnar.


mbl.is Stjórnarsamstarfið geri markmið Íslands torsótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Kvittað fyrir.

Guðjón E. Hreinberg, 10.10.2024 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og sjö?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband