Þakka þér fyrir þessar álfasögur Jón, -það gæti vel verið rétt hjá þér að álfar séu ekki lengur á Íslandi. Og þú gætir jafnvel talið mér trú um að íslendingar yrðu það ekki heldur innan skamms, -þeir yrðu komnir til Tene eða Ítalíu.
Það sagði mér Borgfirðingur í sumar, -þegar ég spurði hann hvort þeir í Múlaþingi stefndu á að fylla höfnina þeirra alveg af grjóti, -að grjótið kæmi úr undirstöðu Álfaborgarinnar.
Þegar hann sá hvað ég gapti, -þá sagði hann að það gerði ekkert til því álfarnir væru allir farnir.
Ég sagði honum að ef svo væri þá yrðu þeir næstir, -og á Borgarfirði yrði ekki annað í framtíðinni en svört sumarhús erlendra auðróna.
Ég get vel trúað að þú hafir séð þetta Guðjón, -í Noregi kalla menn tröllkonur tussur, hafa samið heilu söngleikina um haug-tussur. Við vinnufélagarnir í norsku steypunni unnu stundum með verkfæri sem kallað er hopputussa, -verkfæri sem við köllum jarðvegsþjöppu.
Tröllasögurnar þínar eru samt í ætt við indíánasögur úr vesturheimi, þ.e. þjóðsögurnar sem landar okkar sögðu um hjálpsemi indíána þegar kuldinn og hungrið svarf að í alleysinu fyrstu veturna.
Það er því auðvelt að trúa því að tröllin hafi verið Gelískir íbúar landsins sem voru hér fyrir landnám og lentu í ónáð bláa blóðsins sem gekkst að endingu undir Rómarvaldið.
Þjóðsögurnar héðan að austan eiga fullt að trölla-sögum, svo sem um Kolfreyju og Vött sem Vattarnes í Reyðarfirði og Kolfreyjustaður í Fáskrúðsfirði eru kennd við, þau nágrannarnir réru til fiskjar í kringum Skrúð.
Bera og Sóti voru svo skötuhjú sem bjuggu í Berufirði.
Já - það er kúnst að þekkja muninn á góðkynja og sögum og eitruðum - fólk segir sögur af mismunandi hvötum, og mismunandi "reynslu" og vélabrögð þjóðfélagsverkfræði var til hér áður, rétt eins og nú.
Þegar ég áttaði mig fyrst á að verið væri að stroka hamhleypur út úr vitund fólks, fór ég að rýna það upp á nýtt, og menn, ...
Athugasemdir
Ég er ekki viss um að álfar séu lengur til á íslandi;
en gætu þeir verið til annarsstaðar hér á jörðu?
https://contact.blog.is/blog/geimveru_handbokin/entry/2297922/
--------------------------------------------------------------------
Það eru til fræði sem vilja meina að HULDUFÓLK
gætu verið gestir frá öðrum stjörnukerfum
sem að ferðast í gegnum VÍDDAHLIÐ á milli veralda:
https://contact.blog.is/blog/geimveru_handbokin/entry/2293357/
-------------------------------------------------------------------
Ýtarefni um raunveruleg VÍDDAHLIÐ:
https://contact.blog.is/blog/contact/entry/2296310/
Dominus Sanctus., 26.10.2024 kl. 18:26
Þakka þér fyrir þessar álfasögur Jón, -það gæti vel verið rétt hjá þér að álfar séu ekki lengur á Íslandi. Og þú gætir jafnvel talið mér trú um að íslendingar yrðu það ekki heldur innan skamms, -þeir yrðu komnir til Tene eða Ítalíu.
Það sagði mér Borgfirðingur í sumar, -þegar ég spurði hann hvort þeir í Múlaþingi stefndu á að fylla höfnina þeirra alveg af grjóti, -að grjótið kæmi úr undirstöðu Álfaborgarinnar.
Þegar hann sá hvað ég gapti, -þá sagði hann að það gerði ekkert til því álfarnir væru allir farnir.
Ég sagði honum að ef svo væri þá yrðu þeir næstir, -og á Borgarfirði yrði ekki annað í framtíðinni en svört sumarhús erlendra auðróna.
Magnús Sigurðsson, 26.10.2024 kl. 19:00
Jú, slatti af álfabyggðum hér og þar, einnig meira af tröllum en marga grunar. Auðvelt að finna ... en bannað að auglýsa.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 26.10.2024 kl. 22:09
Þetta er ánægjulegt að fá staðfest Guðjón, -en ég veit ekki hvort það er eins ánægjulegt þetta með tröllin.
Mig hefur lengi grunað að tröllin hafi verið Gelísk við landnám, og því fyrir í landinu, passa þess vegna ekki alveg inn í ættartölur Íslendingabókar.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 27.10.2024 kl. 06:10
Hérna koma allar þær upplýsingar sem að þið þarfnist um TRÖLLIN / (Bigfoot):
https://contact.blog.is/blog/geimveru_handbokin/entry/2293292/
Dominus Sanctus., 27.10.2024 kl. 09:19
Þegar þú segir það Jón, -þá sé ég að Grýla og Leppalúði hafa verið nokkuð space-uð, en jólasveinarnir Gelískari.
Magnús Sigurðsson, 27.10.2024 kl. 09:32
Já ég tel að þar sé komin útskýringin á þjóðsögunni um þau skötu-hjúin.
Dominus Sanctus., 27.10.2024 kl. 10:08
Þjóösögurnar gefa kolranga mynd af tröllum - hef þetta frá tröllunum sjálfum.
{https://www.bitchute.com/video/Cr2DQ2X3X79H
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 27.10.2024 kl. 12:28
Ég get vel trúað að þú hafir séð þetta Guðjón, -í Noregi kalla menn tröllkonur tussur, hafa samið heilu söngleikina um haug-tussur. Við vinnufélagarnir í norsku steypunni unnu stundum með verkfæri sem kallað er hopputussa, -verkfæri sem við köllum jarðvegsþjöppu.
Tröllasögurnar þínar eru samt í ætt við indíánasögur úr vesturheimi, þ.e. þjóðsögurnar sem landar okkar sögðu um hjálpsemi indíána þegar kuldinn og hungrið svarf að í alleysinu fyrstu veturna.
Það er því auðvelt að trúa því að tröllin hafi verið Gelískir íbúar landsins sem voru hér fyrir landnám og lentu í ónáð bláa blóðsins sem gekkst að endingu undir Rómarvaldið.
Þjóðsögurnar héðan að austan eiga fullt að trölla-sögum, svo sem um Kolfreyju og Vött sem Vattarnes í Reyðarfirði og Kolfreyjustaður í Fáskrúðsfirði eru kennd við, þau nágrannarnir réru til fiskjar í kringum Skrúð.
Bera og Sóti voru svo skötuhjú sem bjuggu í Berufirði.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 27.10.2024 kl. 14:00
Já - það er kúnst að þekkja muninn á góðkynja og sögum og eitruðum - fólk segir sögur af mismunandi hvötum, og mismunandi "reynslu" og vélabrögð þjóðfélagsverkfræði var til hér áður, rétt eins og nú.
Þegar ég áttaði mig fyrst á að verið væri að stroka hamhleypur út úr vitund fólks, fór ég að rýna það upp á nýtt, og menn, ...
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 27.10.2024 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.