1.11.2024 | 05:31
Lokaviðvörun frá landvættunum
Kjósendur munu fljótlega fá að velja reykspólandi dísir með stríðsæsingar í möskuðum augunum og lang-lygna lukkuriddara. Allt vildi þetta slekti Selinski kysst hafa. Því framtíð Evrópu veltur á stríði, frelsið í endalausum manndrápum og landinu sé varið til verndar kolefnisspori vindrellandi auðróna, -Íslandsvina sem kalla sig erlenda fjárfesta.
Farið var með "böggum hildar" í vikunni yfir kosningunum í Georgíu daginn sem Selinski birtist án lýðræðislegs umboðs í boði Norðurlandaráðs. Það þótti ekki nógu gæfulegt að aðild að ESB og stríði við Rússland skyldi hafnað í lýðræðislegum kosningum. Reykfjörð hefði samt getað boðið ÖSE upp í Borgarnes, sína gömlu heimasveit, til að kynnast viðunandi talningu.
Nú styttist semsagt í að þjóðin fái að kjósa rísstjórnina í eitt skiptið enn, -og kjósa teiknsískt í annað sinn á árinu. Litla sæta dúkkulýsan, sem er algerlega á móti ESB, er til í að skoða það ef skotið verður undir hana ráðherrastól, að leifa þjóðinni að kjósa einu sinni enn taktískt. Og þá um ESB, -annars verður það bara bókun 35.
Og þjóðin hún lækar því þjóðin er glöð þar sem bláir stjörnuprýddir fánar blakta, - það er svo mikið erlendis. Þá munu sællega búttaðir íslenskir karlmenn þramma um götur Reykjavíkur með hríðskotariffla og loks endanlega lokið við að afmá þann bláa íslenska með krossi elds og ísa, ekki bara af bréfsefni alþingis, -auk þess að skipta um þjóð í landinu.
Reikna má með að kúlulána drottningin fái uppreist æru og fari með fjármálin sem hver önnur hagsýn húsmóðir, eða freyja frá fornu fari. Enda tókst henni um árið að forða blessuðum börnunum úr kojunum í miðju "hinu svokallað hruni". Hún verði því upphafin líkt og þegar Dabbi kóngur sat í Seðlabankanum.
Nýstirnið sem datt í lukkupott kviku við gammagróðann er heldur ekki óskrifað blað á flæðiskerinu. Blaðið var fjölfaldað með landráðum í reykfylltum bakherbergjum þeirra auðróna sem hafa farið með landráð flokksins sem kennir sig við sjálfstæði. Kviki gammagróðinn verður áfram límið sem heldur ríkisstjórn náhirðarinnar saman.
Eins er ekki ólíklegt að komi upp úr taktískum kjörkössunum skoðanakannana að degi borgar verði hróflað upp sem næsta forseta alþingis, karlmennskunni til hreinnar háðungar, -og kristninni til höfuðs. Hann sitji þar í skjóli flokksins sem kennir sig við sjálfstæði eins og hver annar Þistilfjarðar móri.
Eftir að þjóðin hefur lækað darraðardans þeirra Angurboðu og Loka er síður en svo líklegt að Guð blessi Ísland í dauðateyjunum þetta sinnið, -á sama hátt og síðast.
Nú þegar á fullveldi Guðs vors lands er ekki lengur trúað af hverfandi þjóð, -og landið verður gert að fórnargjöf þess þríhöfða þurs sem býður það sér og glóbalnum til rentu.
Landvættirnir áskilji sér eftir sem áður rétt til að taka til sinna ráða svo landinu bláa verði ekki tortímt á altari auðróna.
Holar tóftir
berir gómar
óráðs malið
þaðan hljómar
sem áður bar
nafn sem tónar
alþingi þjóðar
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Ljóð | Breytt 26.12.2024 kl. 11:40 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Magnús, þú ert sannur fulltrúi landvættanna.
Nú þegar landvættirnir hafa flutt okkur lokaviðvörun í ljóði og sagt okkur að við sláum rangan takt og að það komi dymbiltónn frá Íslandsklukkunni. Ættum við að nota síðasta tækifærið sem okkur er boðið upp á til að taka afturhvarfi.
Skiptum aftur yfir í réttan takt og tón. Hlustum á og fylgjum hinum bjarta klukkuhljómi Lýðræðisflokksins, flokki Arnars Þórs Jónssonar.
Vera má að þá blessi Guð Ísland.
Guðmundur Örn Ragnarsson, 1.11.2024 kl. 07:47
Frábærlega vel orðað. Algjör snilld.
Tek undir med Guðmundi, sennilega okkar seinasta von, sem þykjum
ennþá vænt um land okkar og þjóð ad fá Arnar inn.
Sigurður Kristján Hjaltested, 1.11.2024 kl. 08:14
Takk fyrir innlitið og athugasemdirnar félagar, -því miður virðumst við ekki hafa hljómgrunn.
Það er nokkuð einsýnt í hvað stefnir samkvæmt skoðanakönnunum svo sorglegt sem það annars er.
Magnús Sigurðsson, 1.11.2024 kl. 14:28
Hljómgrunnur orðstýfðra leirmenna og vitundargeldinga bergmálsheimsins, skiptir engu, þau hafa verðlaust atkvæði sem vegur ekki á vogarskálum forsjónar og vætta.
Medúsa tekur ekki mark á draumum þeirra myndastyttna sem hún safnar. Hún óttast þennan með spegilinn og brandinn.
Guðjón E. Hreinberg, 2.11.2024 kl. 14:25
Talsvert til í því Guðjón, -en ég var samt meira með þau Hell, Fernisúlf og Miðgarðsorm í huga þegar ég benti á þetta þríhöfða þurs þeirra Angurboðu og Loka.
Hinsvegar verður það að segjast alveg eins og er, að á meðan engin kemur fram sem hefur kjark til að benda á það augljósa, að fullveldið er ekki til staðar í EES og Schengen, -frá þessu þarf að segja sig annað má segja að verði aldrei annað en bergmál leirmenna.
En nú stendur til, -ágreiningslaust, af þríhöfða þursinu og fletum óvættum, að staðfesta bókun 35 til höfuðs landi og þjóð, og guð má vita hvað síðan verður gengið langt án þess að litið verði í spegilinn.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 2.11.2024 kl. 15:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.