9.4.2025 | 06:06
Geldar gæsir
Það hefur verið unnið markvisst að því s.l. 20-30 ár að brjóta niður hina svokölluðu vísitölu fjölskyldu síðustu aldar, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Og valkyrjurnar herða róðurinn með afnámi samsköttunar.
Nú stendur til að afnema samvinnu hjóna um verkaskiptingu, einungis vegna þess að þetta lið, -sem einskís aflar, -skilur hana ekki, -hefur aldrei verið í þeim reynsluheimi. Um leið verður fjárhag margra heimila rústað með tilheyrandi upplausn fjölskyldunnar.
Það má ætla sem svo að stjórnsýslan sé orðin það einræktuð, að þar sé engin lengur innanborðs sem hafa mígið i saltan sjó, eða hefur nokkurn snefil af á hverju fólk í þessu landi lifir, -fólkið sem hefur í gegnum tíðina haldið fáviskufabrikkum stjórnsýslunnar gangandi.
![]() |
Þetta er einfaldlega skattahækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sannleikanum samkvæmt og vonandi vekur þetta einhverja til umhugsunar en skyldi kannski koma í ljós "að sannleikanum verði hver sárreiðastur".......
Jóhann Elíasson, 9.4.2025 kl. 09:22
Vel mælt Magnús.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.4.2025 kl. 11:18
... og Kalli litli froðuskeggur, Marx, hlær í gröf sinni, því þetta er hans uppskrift.
Guðjón E. Hreinberg, 9.4.2025 kl. 11:24
Þetta mátti varla vera lengra félagar, -en einhvern veginn varð að skýra fyrirsögnina geldar gæsir og innihaldið sem einskís afla.
Þetta lið hugsar um það eitt að geta borgað út sjálfu sér fyrir nefndarstörf og glærusjó fengin úr spálíkunum um gervigreindan sýndarveruleika.
Ekki skrítið þó svo að Íslendingum fjölgi ekki hér á landi annarsstaðar en í kirkjugörðunum.
Magnús Sigurðsson, 9.4.2025 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning