Sprengjudúkkur í þjóðbúningum

Það vellur vitleysan upp úr ógæfufólkinu á alþing þessa dagana, jafnvel Gnarrinu er farið að blöskra, -talar um fullra kalla röfl.

Nú þegar öngla á saman í sprengur handa umboðslausa leikaranum, sem ver lýðræðið í Evrópu, telur sú sem datt í lukkupottinn það vera best gert með auðlindagjaldi á hitaveitur landsmanna.

Sú sem kennd er við kúlulán taldi fyrr í vikunni það vera stjórnarskrárbundinn rétt að innmúraðir, en óæskilegir að mati sprengjudúkkanna, séu á fullu kaupi hjá almenningi til æviloka án vinnuframlags.

Þessari skoðun sinni kom kúlulánadrottningin á framfæri þegar færi gafst á milli þess sem bókun 35 var margþvæld úr ræðustól.

Daginn áður hafði drottningin rokkað um Austurvöll í þjóðbúningi með krossinn um hálsinn, ásamt öllum hinum sprengidúkkunum, -flestar í upphlut landsmönnum til yndisauka í tilefni dagsins.

Já maður spyr sig hvort ekki sé rétt að endurnýa þjóðsönginn og taka upp júdóvísjón slagararann; til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.


mbl.is „Blautir draumar“ og „galdrafár“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi tillaga um breytingu á þjóðsöngnum er alveg í takt við þessa "rugludalla sem eru á þingi núna.  "BRAGÐ ER AÐ ÞEGAR BARNIÐ FINNUR"  þegar Gnarrinum blöskra vitleysan og þvælan sem er í gangi, þá er LANGT GENGIÐ.......

Jóhann Elíasson, 20.6.2025 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og sjö?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband