Vond er lygin og lukkupotturinn í spilverki þjóðanna

Nú þrusast þær um þusandi, friðlausar fraukurnar, mínar eru sorgirnar, þyngri en blý. – Það hélt einhver því hér fram í athugasemd um daginn að eðalbornasti einkasonur  Íslandssögunnar hefði hugsanlega verið woke.

Vond er lygin, nú hjá forsætis, brotna þar borgirnar, böl er að því. – Sumir vilja meina að græðgi og vopnaburður hafi ekki náð ógnarjafnvægi á landinu bláa á Sturlungaöld því hafi farið sem fór.

Ef ég á að segja alveg eins og er, -þá finnst mér fasískar fraukur hafa orðið meira woke því leiðari sem þær urðu á Jóni, sem lengi vel var mesta frík á Fróni, -og því minni von um frið nú, en því meiri um sturlun.

En hér vantar tólin og tækin og réttu vandamálin. Þær eru menntaður vel og virtar, boðnar og búnar til veislu, -en þú grófst þeim gröf sem trúðu á nýtt og betra líf. Þú skilur, þú skilur, – þú afkomandi Sturlunga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Já, einmitt.

Þegar þar að kemur, verður styttan af Jóni á Austurvelli sett í harparann, og stytta af Þorsetini Íngólfssyni sett í staðinn.

Það er nú svo.

Sumt er eins og það er.

Vættir settu landi í rúst eftir víg Kolskeggs, vættir settu landið í móðu eftir landastuld Árna M, og viti menn, Vættir eru vaknaðir á Reykjanesi eftir Siðfall okkar tíma.

Hið furðulega er; að þetta virðist fáum augljóst.

Guðjón E. Hreinberg, 17.7.2025 kl. 14:24

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Mér skilst að fyrrverandi forseti í ósamstæðu sokkunum sjái alfarið um þann stall Guðjón, -veit ekki betur en hann hafi þegar verið gerður að prófessor Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands sem sagnfræðingur.

Ef sú sagnfræði verður á pari við þorskastríðs sagnfræðina þá endar Jón sem saxaður gaukur áður en landvættirnir koma nærri. En já þetta lítur alls ekki björgulega út í dag, -en þjóðin hún lækar því þjóðin er glöð.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 17.7.2025 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband