14.8.2025 | 05:47
Ísland sundur skorið þar sem öllu er stolið (myndablogg)
Nú á dögum má keyra í gegnum heilu landshlutana án þess að sjá sauðkind, og við þjóðveginn húka síðustu hálmstrá Bjarts í Sumarhúsum og Gróu á Leiti, á rofabörðum áletruðum "Quck Parking-Bus4you-Street Food-Black Beach Resturant-Spa Lagoon-Guesthouse-Bistro Bar", -ef ekki væri fyrir hrognamálið, þá væri allt horfið í hamfaraórækt á sorry speak english öræfunum.
Undanfarin ár hefur það orðið lenskan að vinna búverkin í nefndum á carbfixuðum hamfaraóræktar styrkjum að boði unionsins og kolefniskirkjunnar, íslenska sauðkindin er orðin safngripur. -Og er nú einnig svo komið að mikið af húsnæði landsmanna er byggt með handaböndum í þétting-byggða nefndum og eru hús jafnvel farin að mygla CE vottuð í gámum á leið til landsins. Hefur slík reglugerða byggðastefna ekki verið viðhöfð frá því land byggðist, -síðasti bærinn í dalnum hvað?
Það má segja að hundaheppnin hafi losað landann við mygluna mest alla 20. öldina. Á meðan hús voru byggð af vanefnum og keypt var fyrst af öllu efnið í þakið; -tomma sex, sem var notuð til að slá upp fyrir steypumótum áður en hún fór í þakklæðninguna. Með því vannst það að timbrið fékk mygluvörn með sementsefjunni, önnur byggingaefni voru að mestu innlend möl, gjóskugjall og sement, -myglufrí.
Eða var það kannski hyggjuviti landans að þakka að steypa og bárujárn urðu þau byggingarefni 20. aldarinnar sem tók við af margra alda grjóti og torfi undir verndarvæng unionsins sem hafði mergsogið mörlandann um aldir? - Og láttu þér ekki koma til hugar eitt augnablik að allar einkaþoturnar séu núna komnar til að dást að fegurð landsins bláa eða vegna menningar mörlandans.
Það sem verra er að nú er innflutta krosslímda myglubixið í húsnæði landsmanna að verða sífellt endingarverra eftir því sem styttist aftur í algert helsi. Og er jafnvel innflutta myglan orðin mun svæsnari og endingin verri en það heimafengna var þegar þjóðin skreið út úr hálfhrundum moldarkofunum í upphafi 20. aldarinnar.
Hugvit íslenskrar byggingarhefðar er nú fótum troðið og óðum að hverfa ofan í svörðinn, ef þá ekki farin veg allra veraldar með þéttingu sovéska súpermarkaðarins. Þar er Bændahöllin komin fyrir horn í allri þéttingunni og Hótel Saga farin forgörðum, -allt orðið meira og minna að heimavist fáviskufabrikkunnar.
Þróunin á minni ævi er öllu ískyggilegri í hinum dreifðum byggðum landsins. Frumburðarrétti mörlandans til að framfleyta sér og hrófla upp þaki yfir höfuðið hefur verið stolið með massífu regluverki. Kvótinn, framsalið, þjóðarsáttin, fjórfrelsið, -eru allt vörður á leið víxlara musterisins, -þeirra sem allt telja sig geta umvafðir í bómull, -geta bæði pantað og lagt á í skjóli reglugerðarinnar.
Þeirra nýjasta nýtt, sem einskis afla, er auðlindarenta. Sú geggjaða hugmynd að nú skuli þeir sem aldrei hafa viljað skíta sig út á slori fá ágóðan sérstaklega. Nú skal fyrrum atvinnurekstur hinna dreifðu byggða lúta öðru regluverki skattalega en almennu, -afleiðingar uppdiktaðs skoffíns kvóta og framsals. -Og þjóðin hún lækar, sem aldrei fyrr, því þjóðin er svo glöð að hafa skaðmenntað sig víxlurum til brúks.
En auðlindarenta breytir ekki þeirri einföldu staðreynd, að sá almenni fótgönguliði, sem einskis aflar og ekkert framkvæmir, mun aldrei njóta reiknaðra vaxta víxlaranna, sú renta mun renna í valda vasa þeirra sem dýfa hvorki hendi í kalt vatn né miga í saltan sjó. Hvað þá þeirra sem hafa skaðmenntað sig frá salti og sjó en hefur verið raðað á ríkis jötuna til að hafa eftirlit með hvort öðru, -og svo auðvitað framfylgja regluverki andskotans.
Fátt virðist ætla að koma hinu stolna Íslandi til bjargar. Afkomendur síðustu hálmstráa Bjarts og Gróu virðast helst vilja búa undir verndarvæng víxlara unionsins, þar sem hendur og hugmyndaflug er niður njörvað og búið er að kellingavæða allt heila klabbið.
Þau hálmstrá, sem enn má sjá dýfa hendi í kalt vatn við blæðandi þjóðveginn í Sumarhúsunum og á Leiti, eru flest af sorry speak english bergi brotin. -Og þjóðin hún lækar, því þjóðin er glöð, -skaðmenntuð á Tene.
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Landsins-saga | Breytt 16.8.2025 kl. 09:28 | Facebook
Athugasemdir
... og ef maður minnist á kommúnista ástandið við öldunana í pottunum, snúa þeir uppá sig, því eina umræðuefnið í Sæluríkinu er húseignaverð á Spáni, veðrið á golfvellinum, og fótboltafréttir.
Guðjón E. Hreinberg, 14.8.2025 kl. 15:14
Það vilja fæstir Lilju kveðið hafa fyrr enn flestir hafa gert það, og ég á ekki von á að margir taki undir þennan pistil, -svo nöturlegur sem hann er.
Magnús Sigurðsson, 14.8.2025 kl. 15:51
Það er alltaf þannig þegar sparkað er í tóma tunnuna - en það væri gaman að sjá fleiri tjá sig um það sem þessi fantagóði pistill minnist á, varðandi byggingarefni og byggingaraðferðir.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 14.8.2025 kl. 17:11
Já, það glymur hæðst í tómri tunnu segir einhversstaðar, og allir vildu þá Lilju kveðið hafa stendur annarsstaðar, -en oftast er það þá orðið of seint, -vænlegra að fara ekki á móti straumnum á meðan þjóðin lækar og þjóðin er glöð.
Þakka þér fyrir tilraunina til að vekja athygli á byggingabransanum, sem er á góðri leið með að verða helsta auðsuppspretta fjárfesta, -notagildið og ending eftir því.
Magnús Sigurðsson, 15.8.2025 kl. 05:48
Góðan daginn Magnús héðan ůr kyrrðinni í Afl-Stakkholti.
Ęg ætla nú samt að læka kjarnyrta íslensku og forna hugsun sem mengar þennan pistil þinn.
Skaðmenntun hefur greinilega ekki skaðað þig þrátt fyrir alltum liggjandi hugarfarsmengun hennar ī samfélagi þjóðar okkar.
Það skiptir litlu þó fáir skilja, það skiptir miklu að hugsun sé orðuð gegn hinni kæfandi tregðu ómennskunnar.
Því á meðan er ekki hægt að tilkynna ótímabært andlát mennskunnar, þess að vera maður.
Hafðu þökk fyrir.
Kveðja úr dumbungi borgarinnar.
Ómar Geirsson, 15.8.2025 kl. 10:39
Bestu þakkir, meistari Magnús, fyrir grátlega sannan pistil.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 15.8.2025 kl. 12:39
Þakka ykkur fyrir undirtektirnar Ómar og Pétur Örn.
Af því að Guðjón minnist á byggingageirann þá er skaðmenntunin komin á ískyggilegt stig þegar háskólamenntun er tekin fram fyrir verklega menntun og áratuga reynslu á byggingastað.
það er reyndar ekkert nýtt að svo sé, þó svo að fréttir hafi verið sagðar af slíku fyrir skemmstu og margir í fyrsta sinn hváð. Byggingameistarar eru síðan kapítuli út af fyrir sig, -þeir einu sem bera persónulega ábyrgð á göllum samkvæmt regluverkinu.
Svona til að setja skaðmenntunina í skiljanlegt samhengi þá fær sú sem er með stúdentspróf en enga reynslu hærri grunnlaun í eldhúsum fáviskufabrikkanna en sú sem er með starfsreynslu og húsmæðraskólagöngu að baki.
Aauðlindarenntan er svo kapítuli út af fyrir sig, og þar er nánast útilokað að koma heilli brú á framfæri eins og málum er háttað hjá þjóðinni sem menntaði sig frá salti og slori, í kerfi þar sem óveiddur fiskur í sjó er mun verðmætari en þegar búið er að veiða hann.
Því miður er þessi pistill grátlega sannur og varla nema von að fáir kunni við að míga í þann salta sjó, þó svo að aðeins væru fleyttar örfáar kellingar.
Magnús Sigurðsson, 15.8.2025 kl. 14:56
, , já og bestu kveðjur úr dumbungnum í dumbunginn.
Magnús Sigurðsson, 15.8.2025 kl. 16:03
Vil taka undir hvert orð Ómars.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 15.8.2025 kl. 19:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.