21.2.2009 | 00:25
Kreppa hvað? ....hvað annað en dýrmætur tími!
Undanfarna daga hef ég dvalið á sælureitnum mínum við sjóinn. Ég hef tekið sólarupprásina með æðarkollunum og skarfinum sem halda sig við tangann í garðinum þar sem atlantshafið leikur við flúðina. Ég hef farið í göngu ferðir um fjörurnar í nágreninu í frábæru veðri. Staðið út á palli í myrkrinu á kvöldin, reynt að telja stjörnurnar og komist að því að tveir plús tveir eru ekki fjórir frekar en mér sýnist. Ekkert sjónvarp, ekkert útvarp, engin blöð, engin kreppa.
http://www.solholl.com/ kíkið á sælureitinn
Frá því í haust hef ég eins og svo margir fleiri haft kreppuna efst í huga. Í nóvember hurfu verkefnin sem fyrirtæki mitt byggði á og starfsmönnum mínum þá fækkað úr tíu í tvo frá því í sumar. Í desember snerti hún mig með atvinnuleysinu og í janúar þegar verkefni komst á dagskrá kom í ljós að ég átti við líkamstjón að stríða sem ég varð að láta laga með tilheyrandi rólegheitum. Ég fór í aðgerð og var inn á sjúkrahúsi í nokkra daga. Þrátt fyrir fréttir af niðurskurði og þjónustuskerðingu heilbrigðiskerfisins varð ég ekki var við ástandið. Því er sennilega að þakka frábæru starfsfólki heilbrigðisstofnanna og þrátt fyrir kreppu þá held ég að þar verði áfram frábært starfsfólk sem hlífi skjólstæðngum sínum við sífelldum véfréttum. Þessa daga á sjúkrahúsinu lá ég mest allan tímann með mp3 spilarann og hlustaði á Pink Floyd. Það sem ég komst næst kreppunni var þegar ég fór fram á setustofu þar sem sjónavarp var í gangi og stefnuræða ríkisstjórnarinnar var á dagskrá, Jóhanna var með síbyljuna sem staðið hefur frá því 6. okt, hvernig til stæði að lágmarka gjaldrot og upplausn þúsunda heimila í landinu. Ég flýtti mér inn og setti mp3 spilarann í eyrun og hlustaði á Shine on you crazy dimonds.
Í stuttu máli sagt þá þurfti atvinnu- og heilsuleysi til þess að ég tæki fríið sem ég er búin að ætla að taka s.l. þrjú ár. Ég hafði að vísu hugsað mér að taka gott frí í vetur eins og svo oft áður, en styttra frí og við aðrar aðstæður. En ég hef fengið ómældan tíma sem ég get notað eftir eigin höfði og hvað er tími annað en verðmæti. Eða erum við ekki oft að vinna til að eiga góðan tíma seinna fyrir okkur sjálf. Nú kom tíminn til mín óvænt og frítt.
Myndir frá góðum dögum:
Athugasemdir
Gangi þér allt í haginn. Hugsaðu bara um það að þú átt þetta frí alveg skilið. Heilsan er númer eitt og gaman að lesa um sælureitin við sjóinn. All the best og Pink Floyd...gerist ekki betra Reynum að gleyma öllu þessu klandri sem okkur hefur verið komið í.
Hulda Margrét Traustadóttir, 21.2.2009 kl. 23:25
Njóttu frísins og þú átt það svo skilið og hugsaðu um heilsuna. þú átt nú sælureitinn Sólhól og njóttu hans til hins ýtrasta. vildi geta kíkt með þér þangað og notið líka.
Þín systir Björg
Björg Sigurðardóttir, 22.2.2009 kl. 17:38
Flott þetta Maggi.
Haraldur Bjarnason, 24.2.2009 kl. 09:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.