Æj, æj, jæ asskotans óheppni, en gengur bara betur næst!

 

Það er nú gott að vita að þeim gekk gott eitt til hjá ÍL þegar þeir tíndu 1/3 af lífeyrissjóðnum mínum.  Það er mikil sálhjálp í því fólgin að fá að vita að um mistök hafi verið að ræða, sem eru í því fólgin að hafa fjárfest í skuldabréfum bankanna og lítilsháttar í Samson.  En mistökin hvað minn lífeyrissjóð varðar eru að ég var í LÍF VI þar sem einungis áttu að vera ríkisskuldabréf og aðrir skotheldir pappírar.

Jafnframt gleður það mig alveg sérstaklega að þeir skulu ætla að verða saksóknara innan handar með að átta sig á þessum smávægilegu mannlegu mistökum sem alltaf geta átt sér stað.  

Þessi LÍF VI leið var ætluð fyrir 65 og þá sem ekki vilja taka áhættu enda ávöxtunin lág og örugg.  En eins og stjórnarformaðurinn og framkvæmdastjórinn sögðu þegar þeir voru að kynna nýja og endurbætta fjárfestingastefnu ársins 2009 "gengur bara betur næst".

Gleymum ekki að okkur er gert með lögum að láta 12% tekna okkar renna til lífeyrissjóða.


mbl.is Segja sjóðinn hafa farið út fyrir heimildir fyrir mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1/3? Viltu ekki hafa þetta 1/4 fyrst þú ert nú að ýkja þetta á annað borð?

nonni (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 15:20

2 identicon

Nonni, þú hefur greinilega ekki átt í þessum sjóði, við hjónin misstum líka því sem næst 1/3 af okkar séreign í lífeyrissjóðnum, svipað og Magnús talar um, engar ýkjur þar.

Sigurbjörg Kristmundsdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 15:23

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nonni minn, varst það þú sem reiknaðir út tapið sem kom fram í bréfinu til mín.  Það fer nefnilega eftir því við hvað er miðað hvað tapið er mikið en þú hefðir átt að orða bréfið betur ef þú vilt að ég ýki ekki.

Magnús Sigurðsson, 18.3.2009 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband