Steiktar spýtur

Þeim hjá MAST á eftir að takast ryðjast inn á fæðingadeildina til að banna brjóstamjólk, cocopuffs kynslóðinni til ómældrar ánægju.

Þeirri sem nú flytur inn unnin matvæli, sem aldrei fyrr, frí við kolefnisporið og landbúnaðarvörur tollflokkaðar sem vegan.

Það styttist óðfluga í þá stund að ekki verði annan þjóðlegan mat að fá í verslunum en burt floginn  hænsni, teiknaðar kartöflur og steiktar spýtur.


mbl.is Ósáttur við að þurfa að taka fisk úr sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fór úrskeiðis?

Það kemur lítið fram í fréttinni hvaða sóttvarnareglur voru brotnar. það virðist nýja normið að laganna verðir skimi eftir pestargemlingum til að færa til sýnatöku auk þess að telja upp að fimmtán.

Þeir Geir og Grani hefðu látið sér nægja að sleppa mönnum með áminningu í þessu tilfelli eftir að hafa litið á klukkuna.

Er nema von að maður spyrji sig að öllum þessum árum liðnum. 

Dean


mbl.is Sóttvarnareglur brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband