Samfélagsáttmáli í tætlum.

 

 

Ég held að þetta sé raunsætt mat hjá Lilju.  Það má svo velta því fyrir sér hvort samfélagsfélagssáttmálin hefur ekki verið endanlega rofinn með aðgerðum ríkisstjórnar, banka og lífeyrissjóða. 

"Tökum dæmi: Tvær fjölskyldur keyptu sér sitt hvora íbúðina í sama húsinu 2007 á 25 milljónir. Önnur fjölskyldan tók 100 % lán og skuldar í dag um 33,2 milljónir. Hin fjölskyldan átti 10 milljónir og tók því 15 milljónir að láni og skuldar í dag um 20 milljónir. Gefum okkur að íbúðirnar kosti í dag um 20 milljónir og lánin hafi hækkað um c.a. 33 % samkvæmt verðtryggingu.

Samkvæmt leið ríkisstjórnarinnar þá fær fyrri fjölskyldan sem tók 100 % lánið afskrifað niður í 110 % og skuldar því 22 milljónir og hefur engu tapað þó hún skuldi 2 milljónir umfram verðmæti.

Hin fjölskyldan fær enga leiðréttingu, skuldar 20 milljónir og er búin að tapa þeim 10 milljónum sem hún lagði fram í upphafi þannig að hún er búin að borga fyrir leiðréttingu hins aðilans í þessu dæmi og gott betur. 

Þetta kostar ekkert fyrir bankana þegar verið er að færa lán í 110 % veðsetningu, veðsetningin var ónýt áður og ef þeim tekst að fá fólk til að borga af 110 % veðsetningu þá eru þeir að græða en ekki tapa því eðlilegt er að skuldari skuldi ekki meira en nemur verðmæti eignarinnar ef hann lagði eitthvað fram sjálfur í upphafi, ef bankinn lánaði honum 100 % í upphafi þá verður bankinn sjálfur að taka tapið af því. Það er enginn akkur í því fyrir neinn að skulda umfram verðmæti húsnæðisins síns og sinnar fjölskyldu."

Væri réttlátt að þriðja fjölskyldan sem á 20 milljóna íbúð skuldlausa í sama húsi gefi 10 milljónir í íbúðinni sinni til bankanna?  


mbl.is Kjósa að fara í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ellert Júlíusson

Það er skammsýni fólks eins og þín sem að kemur til með að leggja landið á hliðina....af hverju fær nonni sleikjó en ekki ég. Nú væri rétt að hugsa aðeins út fyrir þettan örsmáa kassa sem að þú býrð í og hætta þessari meðvirkni í skotgrafarhernaðinum sem að tíðkast í stjórnmálum í dag. Þetta er nákvæmlega það sem að þau stefndu að, búa til gjá á milli skuldara þannig að umræðan beinist frá vanhæfni og mistökum ríkisins.

Hvernig eru samlegðaráhrif þess að dágóður hluti heimila geti ekki keypt neitt. Nú það er einfalt. Maðurinn í dæminu þínu, þessi sem að lagði út 10 milljónir hann vinnur hjá Byko. Hin fjölskyldan, þessi sem þú vilt setja í þrot getur ekki lengur verslað í Byko og því missir "vel" staddi heimilisfaðirinn vinnuna og getur ekki lengur borgað af íbúðinni....niðurstaða, allir missa sitt. Hvor er betur settur núna?

Bætt afkoma allra heimila skilar sér út í hagkerfið, og því til allra. Það voru allir teknir í hinn óæðri og við verðum að hætta þessum molbúahugsunarhætti. Þetta er eitt dæmið það sem að máltækið "eins manns dauði er annars brauð" á alls ekki við!

Góðar stundir.

Ellert Júlíusson, 6.12.2010 kl. 08:26

2 Smámynd: Ellert Júlíusson

Vill samt taka það fram að ég er ekki að verja handónýtar lausnir ríkisins sem snúa einvörðungu að því að leiðrétta hlut banka og lífeyrissjóða.

Ellert Júlíusson, 6.12.2010 kl. 08:28

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góðann daginn Ellert, fórstu eitthvað vitlaust fram úr í morgunn eða ertu vanur að ávarpa "molbúana" svona í morgunnsárið.  Dæmið er af heimasíðu Hagsmunasamtaka heimilanna það sem ég bætti við er spurningin;

Væri réttlátt að þriðja fjölskyldan sem á 20 milljóna íbúð skuldlausa í sama húsi gefi 10 milljónir í íbúðinni sinni til bankanna?

Hefur þú einhverja skoðu á því?   

Magnús Sigurðsson, 6.12.2010 kl. 08:48

4 identicon

Takk fyrir Magnús.

Góður pistill.

Ellert....eru ekki "kveikt ljós" hjá þér?

Það er ekki varið að bjarga nema 15,2% af heimilunum.

Þeir sem hafa verið að halda þjóðinni uppi með skattekjum á botnlausri vinnu og hafa greitt samviskusamlega af sínu verða rænd öllu sínu framlagi.

Það fólk mun ALDREI aftur treysta kerfinu og gerir því það eina sem í stöððunni er... það fer!

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband