Gleðilega páska.

Skáletraði textinn hér fyrir neðan kemur úr "Getting into the Vortex-The teachings of Abraham".  Um er að ræða bók og CD disk þar sem leiðsögn er í djúpri öndun um leið og hlustað er á uppbyggilegan texta og slökunartónslist.  Að draga andann djúpt er mikilvægara en margan grunar og því ágætt að venja sig á að hefja daginn á því. 

Ein ástæða vellíðunar við að reykja er að þá næst djúpur andadráttur.  Með djúpum andardrætti næst mikil súrefnisinntaka sem fer út í blóðið.  En það þarf samt ekki að byrja að reykja til að venja sig á að draga djúpt andann. Ein áhrifamesta aðferðin við að breyta tilfinningasviðinu er hvernig þú andar, berð þig líkamlega og talar.  Þessa ímynd markaðssetti tóbaksiðnaðurinn fyrir sína vöru með frábærum árangri, ímyndin er í fullu gildi þó svo að engin deili um skaðsemi reykinga lengur.  Það að draga djúpt andann ca. tíu sinnum á dag gerir gott og hvað þá ef þetta er gert meðvitað í sambandi við jákvæðan huga.

Inn úr þínu algleymi kemur það sem veitir lífsfyllingu og yndi.  Þaðan finnst þér andi þinn vaxa ferskur og keppa eftir meiru. Með hverri uppgötvun og hverri nýrri stöðu vex tilfinningin fyrir því að komast lengra í nýjum ferskleika.

Þegar þú ert utan sköpunar algleymis þíns, með athyglina á það sem þig vantar, jafngildir það því að biðja um að svo verði áfram. Þegar þú veist hvað þú vilt ekki, ættirðu að vita hvað þú vilt, en þú hefur ekki aðgang, því þú ert utan algleymis sköpunar þinnar. Með öðrum orðum þú getur ekki komist í streymi góðra efnisþátta þegar hugur þinn er upptekinn við annað, þú einfaldlega hefur ekki tvöfalt val á sama tíma. En þegar þú ert í þínu algleymi, eru allar tilfinningar góðar, og þar af leiðandi velurðu það sem þú vilt. Þannig velur þú af því besta sem lífið hefur að bjóða.

Auðvitað er ávinningur að því að vita muninn á hvað þú vilt og vilt ekki, en það er ekki nauðsynlegt að finna óþægindi af því sem þú vilt ekki til að vaxa í þá átt sem þú vilt. Þú getur einungis horft til þess sem þú vilt og notið takmarkalsuss framboðs góðra kosta við mótun þíns veruleika.?

Jafnvel á meðan þú ert að velja út frá vellíðan algleymisins af þeim kostum sem í boði eru, þá ertu um leið að skapa nýja möguleika, nýjar hugmyndir og nýja vaxtarmöguleika. Þú ert ekki aðeins að skapa nýja efnisþætti til upplýsingar inn í þína lífsreynslu, þú ert um leið að búa til áframhaldandi nýja framtíðarsýn til að njóta fleiri uppgötvana, fleiri sambanda, meiri efnistaka, fleiri samsetninga, meiri ævintýra, meiri vitneskju, fleiri óska, meira þakklætis..............

Það þarf alltaf að koma til eitthvað nýtt til að endurnýjast ............ uppspretta sem býður kærleika og gleði sem kallar á þig til óendanlegs vaxtar fyrir fleiri.

Endursagt úr; Getting into the Vortex-The teachings of Abraham.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefurðu séð þennan ?

það er starfandi " Art  Of  Living  " hópur hér í Reykjavik

það koma erlendir kennarar og halda námskeið af og til

engin trúarbrögð  bara  common sense :)

Sólrún (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 15:15

2 identicon

Herna kemur linkurinn

http://www.youtube.com/watch?v=MNkhtEUxgGw

Sólrún (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 15:18

3 identicon

gledilega paska Magnus og goda ferd

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 20.4.2011 kl. 23:34

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir linkinn Sólrún, það eru alltaf að verða fleiri sem sem gera sér grein fyrir mikilvægi andlegrar vakningar.  Það væri gaman að kynnast starfi "Art of Living" hóps.

Vonandi hafðirðu það gott um páskana Helgi, við áttum frábæra daga í Noregi.

Magnús Sigurðsson, 27.4.2011 kl. 08:47

5 identicon

Sæll Magnús

Þið voruð heppin að sleppa við páskaveðrið hér það var ekki spennandi.

http://www.artofliving.org/is-en

Sendi hér siðu A.O.L. Meistarinn vill gjarnan koma hingað og bauð aðstoð sína eftir hrunið.

En var ekki á topp tíu hjá stjórnvöldum hér :(

Sólrún (IP-tala skráð) 27.4.2011 kl. 14:29

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sólrún, verðum við sem höfum áhuga á "vakningu A.O.L" ekki bara að taka málið í eigin hendur?  Ég hef kynnst mörgum upp á síðkastið sem gera sér grein fyrir sjónhverfingunni. 

Já það var ótrúlega gott veður um páskana þar sem ég var, það er reyndar gott veður hérna á Austurlandi þessa dagana og hefur verið vor frá því í lok mars.  Bara einn hrímaður morgunn í apríl hingað til.

Magnús Sigurðsson, 27.4.2011 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband