Hvað með Nígeríu svindlarana?

Það er varla nema von að norskir bankamenn nái að hugsa út fyrir boxið sem þeir vilja að allir séu geymdir í þar sem norðmenn hafa ekki enn þá uppgötvað að fjármálaheiminum er stjórnað af svindlurum. 

En Kjetil Staalsman þarf ekki að hafa áhyggjur af því að ríkisgjaldmiðlarnir séu ekki á útleið. Fólk um heim allan hefur nú þegar fundið aðrar leiðir til að eiga örugg viðskipt sín á milli með öðru en opinberum gjaldmiðlum.

Þessi mynd sýnir hvernig milljónir manna hafa fundið leiðir til að lifa lífinu og eiga blómleg viðskipti án atbeina ríkis og fjármálkerfis. Þetta er ekki Hollywood útgáfan af Bandaríkjunum og alls ekki sú útgáfa sem fjármálakerfið í gegnum sína raðgjaldþrota fjölmiðla vill að komi fram.


mbl.is Vill hætta notkun á reiðufé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Norðmaðurinn Kjetil Staalesen, ráðgjafi hjá Samtökum fjármálamarkaðarins í Noregi, segir að... reiðufé hvetji til glæpa og rána og styðji undir svarta hagkerfið og skattsvik."

Þetta eru best rökin hingað til fyrir því að nota einmitt reiðufé! Allavega á Íslandi þar sem það er forgangsatriði að forða peningum frá bankakerfinu, því peningar sem þar eru geymdir gera nákvæmlega ekkert annað en að hvetja til glæpa og rána og styðja undir skipulögð glæpasamtök og til þess að fjármagna efnahagsleg hryðjuverk gegn landsmönnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.11.2013 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband