Börn náttúrunnar

Við hjalandi læk með sólargeisla á vanga heyri ég dun frá fossinum í fjarska. –Þegar ég skrúfa númerin á gamla Grand Cherokee í byrjun sumars þá segi ég vinnufélögunum að ég noti hann til að fara í berjamó. Þá hlæja þeir fyrir kurteisis sakir og halda að ég sé að fíflast.

Enda hvernig getur það borgað sig að halda upp á verðlausan bensínhák sem leikur sér að 40 lítrunum fyrir bláber, jafnvel þó svo þau séu aðal. -Því er auðsvarða við Matthildur mín erum bæði orðin feyskin, lúin og fóta fúin. -Og sólageislinn hún Ævi á það til að spyrja; -afi förum við ekki á græna bílnum út í tjaldastaði.

Í sumarfríinu í síðustu viku fórum við Matthildur mín í lautarferð sem endaði niður í fjöru. Við höfðum rásað fram og aftur þjóðveginn í napurri austfjarðaþokunni áður en við fundum að endingu skjólgóðan stað undir grasbakka í hvítri skeljasands fjöru innan við leifarnar af gömlu steinsteyptu bryggjunni á Hafnarnesi.

Þegar við vorum búin að dekka borðið með Thermos kaffibrúsa og kanilsnúðum tók ég eftir að það var að flæða, en sagði Matthildi að það væri langt í að við flæddum. Ég sagði henni líka söguna af því þegar ég var aleinn úti í Noregi eftir hið svokallaða hrun og fór í fjöruna okkar í Akurvík á löngum frídegi eftir að hún var farin heim til Íslands.

Af því að tíminn var þá óendanlegur settist ég þar í flæðamálið og sat og sat, á meðan fjaraði. Og áfram sat ég og sat á meðan flæddi meðan ljósbrot sólarinnar lýsti upp andlitið á mér í spegli hafsins.

Þá gat ég orðið talaði við fuglana, það kom meir að segja til mín kjagandi máfur og skoðaði mig hátt og lágt veltandi vöngum. Svo skyndilega rankaði ég við mér þegar alda flæddi yfir skóna mína og máfurinn flaug og settist á sjóinn fyrir framan mig þar sem sólin speglaði sig.

Við Matthildur mín sátum í Hafnarnesfjörunni og fylgdumst með austfjarðaþokunni líða fram af grænum grasbakkanum, með máríerlurnar flögrandi í kringum okkur meðan að kollurnar kenndu ungunum sínum að kafa á sjónum fyrir framan. Óðinshani settist í fjöruborðið, snarsnérist á öldunni og tíndi upp í sig þaraflugur. Og kríurnar steyptu sér kneggjandi eftir síli eftir að hafa tekið okkur í sátt.

Ég spurði Matthildi eftir klukkutíma: -eigum við ekki að taka saman, – nei bíðum þangað til flæðir yfir skóna: sagði hún. Og áfram sátum við og nú í sólinni á meðan hún strauk okkur blítt um kinn í gegnum þokuna á meðan fyllurnar komu flæðandi inn á lygnuna innan við hafnartangann.

Svona leið tíminn ein klukkustund, tvær og þá allt í einu komst alda það langt að við þurftum að lyfta fótunum. Við tókum saman borðið og stólana settum kaffibrúsann í pokann. Um leið og við höfðum klöngrast upp á bakkann sá ég fyllu flóðs koma fyrir Hafnarnestangann, aldan reis inn með landinu og brotnaði svo á grjótinu í fjörunni undir bakkanum.

Þegar aldan hafði runnið út aftur var ekki svo mikið sem eitt skófar eftir okkur niður á hvíta skeljasandinum. -Þarna vorum við heppin: sagði ég, – já heldur betur: sagði Matthildur -Það er ekki víst að við hefðum lifað þetta af. Engin ætti að sleppa því á að hafa setið á milli flóðs og fjöru áður en það verður of seint.

-Nema þá við að vera upptekin eins Matthildur mín. Þegar við keyrðum í þokunni úr Hvaldalnum daginn áður, þar hafði ég lofað henni sól og sumri og stóð við það. En um leið og við komum úr Hvaldalnum og Hvalnesskriðunum í Álftafjörðinn liðum við út í þokuna.

Matthildur þá prjónandi mórauðar buxur á snáðann sem bíður óðþolinmóður eftir því að komast í heiminn sem næsta ömmugull. Ég þurfti að hæga á í þéttum þokubólstri vegna rollu með tvö lömb sem ætluðu sér hálfan veginn.

Þegar ég beygði til hliðar tók lambhrúturinn snögg hliðarspor í sömu átt fyrir framan bílinn og hoppaði hæð sína beint upp í loftið og sló saman fótunum. Hljóp svo hróðugur út fyrir veg. Matthildur hafði litið upp frá tifandi prjónunum og sagði; -sástu þennan töffara, sá var flottur.

Í upphafi síðasta áratugar síðustu aldar gerði Friðrik Þór Friðriksson sína ljúfustu kvikmynd, -Börn náttúrunnar, mynd sem náði þeim árangri að heilla heiminn. Myndin var um gamlingja sem tilheyrðu ekki lengur tíðarandanum og lögðu upp í ferðalag á gömlum Willys jeppa frá fjölmenninu út í náttúruna, -þar sem hjartað slær.

Já ég held að ég haldi áfram í berjamó eitthvað fram á haustið og stefni svo á að setji númerin aftur á gamla Grand Cherokke næsta sumar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dásamleg lesning. 

Hafðu margfaldar þakkir fyrir, meistari.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 10.8.2023 kl. 19:07

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst eftir þennan lestur, þá uppgötva ég það að maður sjái lífið öðrum augum en maður gerði fyrir 10-15 árum og ég er síður en svo ósáttur við það, margar greinarnar sem þú skrifar virka þroskandi á mig og fylla mig innri ró.  Margt gott bloggið hef ég lesið hjá þér en þetta var með þeim allra bestu...

Jóhann Elíasson, 10.8.2023 kl. 20:20

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Mikið er gott að geta verið sammála síðustu ræðumönnum, og já, töffararnir eru víða.

Finnast meðal lambhrúta og bílstjóra sem taka sál kerrunnar fram yfir kreditið hjá bensíndælunni.

Og barnsvitið stendur fyrir sínu.

Sólarkveðjur til ykkar í efra, leitt að geta ekki heiðrað Vilhjálmsvöll á laugardaginn þegar örverpið ætlar að sparka þar í bolta.

Megi samt sólin þar skína og leikbræður skiljast sáttir að leikslokum.

Úr loksins blíðunni í neðra.

Ómar Geirsson, 10.8.2023 kl. 21:32

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir góð orð félagar.

Já hún hefur verið þaulsetin þokan í undanfarnar vikur eins og stundum áður austan lands þó svo að ekki hafi medíunni komið til hugar að presentera að um hamfarir væri að ræða.

Það er alltaf einhverstaðar sólarglennur á landinu bláa og má finna þær í hverjum fjórðungi þó svo að misjafnt sé á milli mánaða. Samt er skemmtilegar þegar þær hitta á sumarfríið.

Núna er ég aftur mættur til starfa í steypunni og hef verið upp á Eyjabökkum í kyrrð og ró með ungum og sprækum drengjum s.l. daga. Gott ef það var bara ekki sól í gær, allavega í grennd. Getur maður beðið um meira, svona miðað við aldur og fyrri störf?

Nú eru menn í boltaleikjum og fjallaferðum langt fram eftir aldri svo ekki verður efast um það að við lifum  gósen tíma, með sól í heiði.

Með sumarkveðjum af Héraði, út og suður, norður og niður

Magnús Sigurðsson, 11.8.2023 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband